Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Page 59

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Page 59
skráningarlýsing hefur verið gefin út sem geta haft áhrif á virði þeirra verðbréfa sem sótt er um skráningu á. Til þess að mæta tilvikum af þessu tagi er mælt fyrir um það í 20. gr. skráningarreglugerðar nr. 434/1999 að komi nýjar upplýsingar fram, sem máli geta skipt um mat á útgefanda eða verðbréfum hans, frá því að skráningarlýsing er birt og fram til þess tíma að verðbréfin eru skráð, beri að gefa út viðauka við skráningarlýsinguna með hinum nýju upplýsingum. Sam- bærilegt ákvæði er að finna í 30. gr. reglna KI nr. 2. Með ákvæðinu er leitast við að tryggja á sem bestan hátt að fjárfestar hafi sem nýjastar upplýsingar um útgefandann meðan á skráningarferlinu stendur. Stjóm kauphallar þarf að samþykkja efni viðaukans og skal birta hann með sama hætti og skráningarlýsinguna. 9.5 Undanþágur frá reglum uin efni og birtingu skráningarlýsinga Við tilteknar aðstæður getur kauphöll annars vegar veitt undanþágu frá birt- ingu skráningarlýsingar og hins vegar ákveðið að upplýsingar í skráningar- lýsingu séu takmarkaðar. Reglur um þessar undanþáguheimildir eru margslung- nar en þær er að finna í viðauka IV með skráningarreglugerðinni nr. 434/1999 um opinbera skráningu verðbréfa í kauphöll. Rökin fyrir undanþáguheimildunum eru að í tilteknum tilvikum liggja þegar fyrir upplýsingar um útgefenduma á verðbréfamarkaði eða um er að ræða útgef- anda sem almennt er álitinn traustur, þannig að staða fjárfesta og upplýsingagjöf til þeirra er þegar tryggð. Dæmi um þetta eru ríki, sveitarfélög og bankar. Kauphöll metur hvort einstök tilvik réttlæti frávik frá hinum almennu regl- um um efni skráningarlýsinga. Fer það eftir mati á hagsmunum fjárfesta, og hvort þeir hafi þegar fullnægjandi upplýsingar um verðbréfrn, hvort heimild er veitt. 9.5.1 Undanþágur frá útgáfu skráningarlýsinga í I. kafla viðauka IV eru tilgreind þau tilvik þar sem kauphöll getur veitt undanþágu frá útgáfu skráningarlýsingar. Undanþáguheimildunum má skipta í fimm meginflokka. í fyrsta flokkinn falla tilvik þegar verðbréfin hafa þegar verið seld í al- mennu útboði, þau gefin út í tengslum við yfirtökutilboð eða samruna. Astæða þess að heimilaðar eru undantekningar í þessum tilvikum er að samkvæmt lög- um ber að leggja fram ákveðnar upplýsingar við aðgerðir af þessu tagi. Ef þær upplýsingar sem þegar hafa verið gefnar út uppfylla almennt skilyrði um efni skráningarlýsinga væri hugsanlegt að veita undanþágu. Undir annan flokkinn fellur útgáfa hlutabréfa sem hluthafar fá án endur- gjalds, svo sem jöfnunarbréf eða ný bréf sem gefin eru út í stað eldri bréfa. Einnig falla undir þessa undanþáguheimild hlutabréf sem em gefin út í skiptum fyrir réttindi samkvæmt breytanlegum og skiptanlegum skuldabréfum. Skilyrði fyrir þessum undanþágum er að hlutabréfin í þeim flokki sem afhenda á séu þegar skráð. 253
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.