Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Side 69

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Side 69
er ljóst að vegna þeirra miklu hagsmuna sem eru í húfi verða gerðar ríkar kröfur til stjómarmanna um að þeir sýni aðgæslu og skoði málin í þaula. Meginreglan er sú að háttsemi allra stjómarmanna er metin út frá sama mæli- kvarða. Sú skoðun hefur þó verið sett fram að til stjómarmanna, sem em sérfræð- ingar á því sviði sem er til umfjöllunar hverju sinni, verði gerðar ríkari kröfur. Samkvæmt þessu sjónarmiði þarf háttsemi hvers stjórnarmanns að skoðast sjálf- stætt eftir atvikum hverju sinni. Ekki verður gerð sú krafa til læknis sem situr í stjóm félags að hann geti metið flókin lögfræðileg álitaefni samkvæmt einhverj- um samningi sem félagið hefur gert. Ef hins vegar liggja fyrir upplýsingar um að samningur félags við stóran viðskiptamann væri í uppnámi vegna vanefnda, og lækninum væri kunnugt um þær upplýsingar, bæri honum að ganga úr skugga um að upplýsingar um þessa áhættu rötuðu í skráningarlýsinguna. Ekki verða heldur gerðar kröfur til þess að almennur launþegi sem situr í stjóm geti lagt mat á hvort fjárhagslegar upplýsingar sem birtast í ársreikningum og árshlutareikn- ingum félags gefi almennt tilefni til athugasemda í skráningarlýsingu, nema um væri að ræða atriði eins og stórfellt tap á rekstri eða álíka almennar upplýsingar sem öllum á að vera ljóst að hafi þýðingu fyrir fjárfesta. Fara verður varlega í að beita mismunandi sakarmati hjá stjórnannönnum. Líklegt er að því verði al- mennt ekki beitt nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi, t.d. þegar stjórnar- manni, sem er lögfræðingur, hefur að jafnaði verið falið að skoða sérstaklega þau lögfræðilegu álitaefni sem upp hafa komið.63 Þrátt fyrir þessa mismunandi aðstöðu stjómarmanna, og þar af leiðandi mis- munandi sakarmat, er ljóst að á þeim hvíla ríkar skyldur skv. 18. gr. skráningar- reglugerðar nr. 434/1999 og öðrum reglum um starfsemi félaga. Þótt almennt verð ekki lögð sérfræðingaábyrgð á stjómarmenn má telja líklegt að rrkar kröfur verði gerðar til háttsemi þeirra og að þeir verði að sýna mikla aðgæslu þar sem um mikla hagsmuni er að ræða. Við mat á háttseminni verður miðað við það sem í Danmörku hefur verið nefnt „god prospektskik“ og tekur mið af því hvemig tíðkanlegt er að gera skráningarlýsingar úr garði, eða með öðmm orðum hvemig 63 Nánari umfjöllun um mismunandi sakarmat stjómarmanna er að finna hjá Stefáni Má Stefánssyni: Hlutafélög og einkahlutafélög, bls. 364 og Soren Friis Hansen og Jens Valdemar Krenchel: Lærebog i selskapsret II, bls. 395. Sem dæmi um strangar kröfur sem gerðar eru til almennra stjómarmanna má benda á H 1991 206 í máli sem Glitnir höfðaði gegn stjómarmönnum í félagi sem hafði afsalað aflahlutdeild sem fylgdi báti sem Glitnir var með veð í. Samkvæmt lögum var óheimilt að framselja aflahlutdeild frá báti nema með samþykki veðhafa. f málinu kom í ljós að í veðbókarvottorði sem gefið var út í tengslum við framsal láðist sýslumanni að geta um veðréttinn og því fékkst samþykki Fiskistofu fyrir framsalinu. í málinu lá fyrir að hinir stefndu stjómarmenn, sem voru böm þriðja stjómarmannsins og framkvæmdastjóra félagsins og eigendur hlutafjár í félaginu, höfðu ekkert kynnt sér málið og lýstu því yfir að þau hefðu ekki vitað hvað þau voru að skrifa undir. Margdæmt er að athafnaleysi leysir stjómarmenn ekki undan ábyrgð. Það sem er hins vegar athyglisvert við dóminn er að reglur um framsal aflahlutdeilda eru ekki á valdi hvers manns. Reglumar hafa verið að breytást í gegnum tíðina og því ekki gefið að stjómarmenn eigi að bera ábyrgð. í dómi Hæstaréttar er því slegið föstu að stjómarmenn eigi að kunna skil á þeim reglum sem gilda um starfsemi félagsins. 263
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.