Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Síða 94

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Síða 94
úthlutun veiðiheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði yfir veiðiheimildunum væri niðurstaðan ótvírætt sú að um beinan eignarrétt væri að ræða. Spumingin er hvernig skilja beri umræddan fyrirvara. Það er mat þeirra fræðimanna, sem áður hefur verið vísað til, að skilja beri hugtakið eignarrétt í greininni með sama hætti og í 72. gr. stjómarskrárinnar, þ.e. með rúmum hætti. Þessi niðurstaða hefur það í för með sér að ríkisvaldið getur gert svo til hvaða breytingar sem er á kvótakerfinu án þess að bótaskylda stofnist, einungis verður að taka tillit til atvinnuréttar þeirra sem fyrir em. Ef gengið er út frá þessu geta æði sérkennilegar aðstæður komið upp. Tökum sem dæmi að ákvörðun yrði tekin um að færa allar veiðiheimildir í hendur nýjum aðilum. Slíkt myndi leiða til bótaskyldu fyrir ríkið þar sem jafnræðis væri ekki gætt og atvinnuréttur þeirra sem nú fara með veiðiheimildimar væri ekki virtur. Þeir aðilar, sem leigja kvóta til að stunda fiskveiðar, fengju þó ekki neinar bætur þótt þeir sannanlega myndu missa atvinnu sína. Hins vegar myndu þeir kvótaeigendur, sem höfðu þann starfa að leigja þeim kvótann, fá bætur, m.ö.o. heimild kvótaeigandans til að leigja kvóta nýtur verndar stjómarskrárinnar sem atvinnuréttindi. Þetta dæmi ætti að sýna hversu ófullnægjandi og órökrétt það er að skilgreina rétt þeirra sem fá úthlutað veiðiheimildum eingöngu sem atvinnuréttindi. Eg tel verulega vafasamt að túlka hugtakið „eignarrétt“ í 3. málsl. 1. gr. laga um stjórn fiskveiða með þeim rúma hætti sem það er notað í 72. gr. stjómar- skrárinnar. Ymis rök styðja þessa ályktun. I fyrsta lagi myndi slík túlkun leiða til óeðlilegrar niðurstöðu sé litið til orðalags ákvæðisins sem og samræmis þess við önnur ákvæði laganna. Niðurstaðan er óeðlileg þar sem orðalag ákvæðisins gefur ekkert tilefni til slíkrar túlkunar, þvert á móti er augljóst að ákvæðið er íþyngjandi fyrir handhafa veiðiheimildanna, en gera verður kröfu um að slík íþyngjandi ákvæði og ákvæði sem takmarka eignarrétt séu skýr en lúti ella þrengjandi lögskýringu. Niðurstaðan er jafnframt óeðlileg í þeim skilningi að hún er í algerri andstöðu við önnur ákvæði laganna sem veita handhöfum veiði- heimilda tiltekin umráð, eignarréttarlegs eðlis. I öðru lagi myndi slík túlkun leiða til ósanngjarnrar niðurstöðu fyrir handhafa veiðiheimildanna þar sem hún felur í sér að löggjafinn getur, að teknu tilliti til atvinnuréttar manna, skert veiðiheimildir fyrirvaralaust án tillits til aðstæðna eða væntinga þeirra sem veiðiheimildimar hafa. Það væri t.d. berlega ósanngjamt ef unnt væri að svipta útgerðarmann aflaheimildum í dag sem hann keypti í gær í góðri trú á gmnd- velli framsalsheimilda í lögunum. í þriðja lagi myndi slík túlkun leiða til óhag- kvæmrar niðurstöðu þar sem hún leiðir til óvissu og óöryggis í rekstri útgerða sem er jafnframt í andstöðu við markmið laganna um að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu. Eðlilegast virðist og jafnframt í samræmi við almennar lögskýringarreglur að skýra hugtakið „eignarrétt“ þröngt, þ.e. þannig að einungis sé átt við beinan (ótakmarkaðan) eignarrétt. Eftir stendur þá að úthlutun veiðiheimilda getur myndað takmörkuð eignarréttindi, t.d. afnotarétt. Hvert inntak þeirra réttinda er nákvæmlega ræðst af öðrum ákvæðum laganna. 202
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.