Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1996, Blaðsíða 14

Ægir - 01.10.1996, Blaðsíða 14
aði upplýsingum um sjóslys og Vita- og hafnamálastofnun hafði umsjón með hönnun innsiglinga og innsigl- ingamerkja. Mörg sjóslys verða í og við innsiglingar í hafnir. Sameining stuðlar að gerð öruggari hafnarmann- virkja. Vita- og hafnamálastofnun hefur unnið að rannsóknum á öldulagi á haf- inu kringum landið og safnað upplýs- ingum í nærri tvo áratugi. Til að auka öryggi sjófarenda og auðvelda sjósókn hefur verið komið upp upplýsingakerfi með upphringingarbúnaði um veður og sjólag þar sem 19 veðurstöðvar í vit- um og á annesjum senda upplýsingar um veður og 7 öldudufl sem gefa upp ölduhæð og öldulengd. í samvinnu við aðila á Norðurlöndum er unnið að rannsóknum á hreyfingum skipa í höfnum. Niðurstöður þessara rann- sókna eru notaðar við hönnun hafna og geta nýst við gerð reglna um búnað skipa. Vita- og hafnamálastofnun gerir áætlanir um uppbyggingu hafna. Sigl- ingamálastofnun ríkisins heldur skrá yfir skipaflotann og fylgist með þróun hans. Við hönnun og áætlanagerð um uppbyggingu hafna er mikilvægt að hafa góðar upplýsingar um skipaflotann og áætlaðar breytingar á honum. Fjórir á biðlaun Eins og oft vill verða getur þurft að eyða til þess að geta sparað. Þannig er því farið með áætlaða sameiningu þess- ara stofnana. í greinargerð með frum- varpi til laga um Siglingastofnun er talið að sameiningin minnki útgjöld hins opinbera um 14-15 milljónir ár- lega en fyrsta árið verði viðbótarkostn- aður 47 milljónir. Þær felast einkum í endurbótum og stækkun sem gera þarf á húsnæði Vita- og hafnamálastofnun- ar í Kópavogi en gert er ráð fyrir að öll starfsemi hinnar nýju Siglingastofnun- ar verði þar undir einu þaki. Siglinga- málastofnun ríkisins er í leiguhúsnæði á Hringbraut og greiðir 7 milljónir ár- lega í leigu sem munu sparast þegar flutt verður í Vesturvör. Öllum starfsmönnum beggja stofn- ana var boðið starf við Siglingastofnun. Því tilboði tóku allir nema fjórir starfs- menn sem fara á biðlaun og eiga það jafnframt sameiginlegt að vera komnir fast að eftirlaunaldri. Hver eru verkefnin? Skipað verður hafnaráð og siglinga- ráð Siglingastofnun íslands til fullting- is en annars era verkefni stofnunarinn- ar skilgreind þannig í lögunum: 1. Að annast þátt ríkisins í framkvæmd hafnalaga. 2. Að hafa umsjón með ríkisstyrktum framkvæmdum við sjóvarnargarða og lendingarbætur. 3. Að annast framkvæmd laga um eftir- lit með skipum, laga um mælingu skipa og laga um skráningu skipa. 4. Að annast framkvæmd laga um vita- mál, laga um leiðsögu skipa og laga um kafarastörf. 5. Að annast mál er varða lög og varnir gegn mengun sjávar og reglugerðir samkvæmt þeim, að því leyti sem þau varða skip og búnað þeirra sam- kvæmt reglum sem umhverfisráð- herra setur. 6. Að annast samstarf við alþjóðastofn- anir og framkvæmd alþjóðasam- þykkta sem ísland er aðili að og varða siglinga-, hafna- og vitamál. 7. Að vera stjórnvöldum til ráðuneytis um mál sem eru í verkahring stofn- unarinnar. □ Rafmagnstjakkar MD Vélar hf. hafa nú gengið frá umboðssamningi við Linak í Danmörku um sölu og kynningu á framleiðslu þeirra hér á landi. Linak er framleiðandi á hágæða rafmagnstjökkum og búnaði til notkunar bæði til lands og sjávar. Öll framleiðsla á rafmagns- tjökkum hjá Linak er samkvæmt ISO 9001 staðli og það sem þeir framleiða fyrir heilbrigðis- geirann er samkvæmt EN 60601-1 staðli. Rafmagnstjakk- ana ásamt búnaði er hægt að fá með rakavörn allt að IP-66. Möguleikar fyrir rafmagnstjakka eru mjög víða. Þeir hafa t.d. verið notaðir mikið í húsgagnaiðnaðinum og fyrir sjúkrahús. MD Vélar hf. hafa nú þegar selt nokkra tjakka til hraðastýringar og sem hluta af stjórnbúnaði fyrir skip og báta. OMISSANJDI HANDBÓK ---- nokkuf ár fyitrUrtl* 00 ANNAÐ verstóöva Kvóti fókve.ð.stiofn PÖNTUNARSÍMI: 568 1225 14 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.