Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1997, Síða 58

Ægir - 01.09.1997, Síða 58
rannsóknir á skreið, rækju og humri og verkun síldar og ýmsar rannsóknir á hrognum. Ónefndar eru rannsóknir varðandi bræðslu á síld, loðnu, kolmunna og öðru hráefni. Þannig hefur verið rannsakað hvernig nýta megi hráefni betur, rotverja það fyrir bræðslu og hvernig megi fá mjöl af sem mestum gæðum. Þá hafði Rf nokkur verkefni tengd líftækni og notkun hennar í fiskvinnslu. Til að stunda þessar rannsóknir og veita þjónustu hefur stofnunin þróað og aðlagað margskonar mælingar við gæðamat á fiski. Af nýrri verkefnum sem unnið hef- ur verið að og líkleg eru til að skiia ár- angri á næstu árum eru verkefni sem tengjast ferskleikamati og þróun að- ferða til að meta ferskleika fisks. Hér er bæði um skynmat og rafrænar aðferðir að ræða. Þá hafa verkefni sem tengjast heilnæmi og útbreiðslu sýkla verið áberandi og fyrirtæki nýtt niðurstöður þeirra til að bæta vinnsluferli og verk- lag, t.d. varðandi hreinlæti og þrif. Verkefni sem tengjast útbreiðslu að- skotaefna eru mjög mikilvæg fyrir ís- lenska fiskvinnslu og þau verkefni sem hafa verið í gangi og eru í gangi, auka traust manna á íslensku sjávarfangi og spara þannig framleiðendum verulegar upphæðir sem þeir þyrftu annars að kosta til með hverjum farmi. Þá hafa sérfræðingar stofnunarinnar tekið þátt í og skipulagt fjölda nám- skeiða fyrir starfsfólk fiskvinnslunnar. Eins og gefur að skilja skiia ekki öli verkefni sýnilegum árangi, a.m.k. þeg- ar litið er til skamms tíma. En það er eðli og hlutverk vísinda og rannsókna að spyrja spurninga sem ekki verður svarað nema með því að nema ný lönd, lönd sem ekki alltaf gefa af sér eins og til var sáð. Stofnunin hefur þróast úr rann- sóknastofu í stofnun sem á seinustu árum hefur vaxið með því að auka hlut sértekna í tekjum. Sértekjur eru sóttar til ýmissa sjóða svo sem Rann- sóknasjóðs Rannsóknaráðs, Norræna Úr starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Hjörleifxir Einarsson segir í grein sinni að stofhunin liafi þróast á undanfómum árwn úr rannsóknarstofu í stofnun sem afli sér í vaxandi mœli sértekna með verkefhum. Búist er við að stærri fyrirtœki með sérmenntað starfsfólk óski í framtíðinni eftir sérhœfðari og flóknari rannsóknum. iðnþróunarsjóðsins og í sjóði Evrópu- sambandsins. Á liðnu ári voru gerðar skipulags- breytingar á Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins sem m.a. er ætlað að gera starfsemina markvissari og stofnunina færari um að takast á við þau verkefni sem framundan eru, en þau eru bæði mörg og stór. Mikið hefur verið rætt um hvernig fiskiðnaðurinn muni þró- ast á komandi árum. Má þar nefna aukna fullvinnslu afurða með nýtingu alls hráefnis, framhaldsvinnslu á sjó, nýjar (fyrir íslendinga) tegundir og nýja markaði. Ekki má gleyma um- hverfismálunum, svo sem veiðum og vinnslu úr stofnum utan útrýmingar- hættu, ómenguðu hráefni og vinnslu sem skaðar ekki umhverfið. Þá verður aukin áhersla á heilnæmi og öryggi matvæla. Þegar má sjá að fyrirtæki eru að stækka og taka til sín fleiri þætti svo sem þróunar- og sölumál. Þetta kallar á breytingar í ýmsum ytri og innri þáttum vinnslunnar. Auknar kröfur munu verða gerðar til þekkingar og færni allra sem við veiðar og vinnslu starfa. Fram að þessu hafa fyrirtæki verið áberandi í þjálfun almennra starfsmanna og jafnvel stjórnenda. Hlutur starfsfólks með háskólapróf hefur þó aukist, ekki síst með tilkomu Háskólans á Akureyri. Ljóst er að stór- auka verður áherslu á kennslu fisk- og annarrar matvælavinnslu í framhalds- skólum ásamt raun- og náttúrufræði- greinum og gera hlut þessara greina ekki síður áberandi en félags- og um- önnunargreinar og auka þannig sam- keppnishæfni fiskvinnslunnar. 58 Mm
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.