Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1997, Side 80

Ægir - 01.09.1997, Side 80
UM SJÁV^g 90 ára REVTIN6UR Ný vinnslulína í Sigurbjörgina Frystitogarinn Sigurbjörg ÓF-1, sem áður var gerður út af Magnúsi Gamalíelssyni hf. í Ólafsfirði en er nú í eigu Þormóðs Ramma-Sæbergs, eftir sameiningu fyrirtækjanna, fór nýverið til Póllands þar sem skipið verður m.a. sandblásið og ýmsar aðr- ar minni lagfæringar gerðar á því. Ólafur Marteinsson, framkvæmda- stjóri Þormóðs ramma - Sæbergs, segir að eftir Póllandsferðina fari skipið beint til Akra-ness þar sem sett verður ný vinnslulína á millidekkið frá Þorgeiri og Ellert hf. Reiknað er með skipinu aftur á veiðar seint í haust. Sigurbjörgin var smíðuð árið 1979 hjá Slippstöðinni á Akureyri. Olíutankur hreinsaður með liáþrýsti- búnaði. „Þetta er þess vegna fljótlegra en með sandblæstrinum og sem dæmi um hreinsun á olíutönkum þá hreins- um við 1500 fermétra tank á 4-5 dög- um. En auðvitað fara öll svona verk eftir ástandinu þegar við komum að," segir Kristján. Hann segist merkja töluverða við- horfsbreytingu gagnvart málningu skipa og að skilningur manna fyrir undirvinnu sé að aukast. „Undirvinnan getur skilað betri endingu sem nemur nokkrum árum. Það besta er að taka síðan skipin aftur eftir nokkur ár og hreinsa bletti þar sem þörf er á en gallinn er að yfirleitt eru skipin orðin það svelt af málingar- viðhaldi þegar við komum að verki að hreinsunin verður viðameiri. Menn hafa kannski frestað þessu viðhaldi þegar verr hefur árað í útgerðinni en þegar svo birtir yfir og meiri peningar koma inn þá eru fjármunir lagðir lagt í málninguna." Hreyfst af tækninni í Danmörku Kristján er fyrrverandi stýrimaður hjá Eimskip en hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði þegar hann var með írafoss í slipp í Danmörku árið 1990. Þá sá hann lest skipsins hreinsaða með há- þrýstiþvotti. „Mér fannst þetta alveg bráðsniðugt og ákvað að taka mér árs- frí frá sjónum til að reyna þetta hér heima og í því fríi er ég enn. Skipa- hreinsunin kom samt ekki að marki inn fyrr en fyrir tveimur árum en hef- ur hægt og bítandi verið að byggjast upp." Fimm menn starfa að jafnaði hjá Blæstri hf. 80 ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.