Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 39

Ægir - 01.12.1997, Blaðsíða 39
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Scháfer hillukerfi frá G.Á.-Péturssyni: Hentar vel fyrir frystigeymslurnar - segir Guðmundur Guðmundsson, verslunarstjóri 'T'yrirtœkiö G.Á. Péturssoti í Jc Reykjavík hefur um árabil flutt inn og selt hérlendis iðnaðarhillu- kerfi frá þýska fyrirtœkinu Scháfer. Guðmundur Guðmundsson, verslun- arstjóri, segir að kerfið henti ekki hvað síst í fiskvinnslufyrirtœkjum enda burðargetan mikil og kerfið því tilvalið á staði eins og t.d. frysti- geymslur. Guðmundur segir að mikil reynsla sé komin á kerfin hjá notendum þeirra hér á landi og kosturinn við þau sé sá hversu fjöibreyttir notkunarmöguleik- ar þeirra eru, auk þess sem burðarget- an er mikil. Hún geri að verkum að hægt sé að nota kerfin til að geyma vörubretti með tilbúnum vörum eða hráefni. Á þann hátt séu kerfin hentug í ýmis konar birgðageymslur þar sem gott skipulag þurfi að vera á birgða- haldi. „Til þessara kerfa heyrir bæði plast- búnaður og stál, vagnar, kerrur, plast- kassar af ýmsum stærðum og svona mætti áfram telja. Hugmyndin að baki þessu er að ná yfir allar þarfir sem geymsluhúsnæði kallar eftir. Sú lýsing Hluti úr stálhillukerfi. Plastkassar geta komið víða að notum í framleiðslu- fyrirtcekjum en Sháfer hefur breytt kerfi í plast- kössum. sem kannski á best við er að segja að í kerfunum sé svarað jafnt þörfum fyrir barnaher- bergi sem skipasmíðastöðvar. Það kerfi sem við höfum að- allega selt er skrúfulaust þannig að mjög auðvelt er að setja það upp. Þeir þættir sem Schafer-kerfin byggja mikið á eru gæðin, fjöl- breytnin og styrkleikinn en það eru einmitt þau atriði sem kaupendurnir sækjast eftir," segir Guðmundur en meðal þeirra aðila sem nota kerfi frá Schafer eru Marel hf., Flugleiðir, Baader hf. og fleiri. ÆGIR 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.