Ægir - 01.10.1998, Page 34
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Qldpasniíðaiðnaðurii
inn
Nótaskipin stœkka vélarnar:
Nauðsynlegt vegna
kolmunnaveiðanna
-segir Emil Thorarensen, útgerðarstjóri Hraðfystihúss Eskifarðar hf.
Að miiwsta kosti þrjú nóta-
veiðiskip í flotanuin fara í
vélaskipti á koinandi vori og verða
vélar skipanna stœkkaðar verulega.
Skýring á þessu eru fyrst og fremst
kolmunnaveiðamar sein gengið hafa
vel í suinar en fullljóst er að skipin
þurfa á aiiknii vélarafli að lialda.
Emil Thorarensen, útgerðarstjóri
Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf., segir
ákveðið að skipt verði um vél í Hólma-
borginni á komandi vori og strax að
þeim breytingum loknum verða sömu
breytingar gerðar á nótaskipinu Jóni
Kjartanssyni. Til viðbótar þessum skip-
um Hraðfrystihúss Eskifjarðar er afráðið
að Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar
hf. á Neskaupstað fari í vélaskipti í vor.
Athyglisvert er að öll eru þessi skip
tiltölulega nýlega komin úr verulegum
breytingum. Emil segir að hvað varðar
Hólmaborgina og Jón Kjartansson þá
hafi verið ljóst að fyrr eða síðar yrði að
fara með skipin í endurnýjun á vélum
og öðrum tilheyrandi búnaði. „Við
höfum fengið um 30 þúsund tonn af
kolmunna en það er nauðsynlegt að
tryggja góða veiðireynslu á kolmunn-
anum áður en þessi tegund verður
kvótasett. Þess vegna viljum við búa
skipin betur út til þessara veiða en það
er ljóst að breytingarnar eru mjög
kostnaðarsamar," segir Emil.
Hólmaborgin fer í vélaskiptin í mars
og væntanlega verður því verki lokið
snemmsumars.
Malio er i jn.ofn!
SKIPAVIÐGERÐIR
Dísilsstillingar
Plötusmíði
Spilviðgerðir
Þjónusta okkar miðar að því að þú þurfir
að koma sem sjaldnast!
Vélaviðgerðir
Rennismíði
Vökvakerfi
Giárui
• Grandagarði 18
• 101 Reykjavík
• Símar 552 8922 - 552 8535
• Fax 562 1740
Taakniþjónusta
VÉLAVERKSTÆÐI
34 ÆGiIR