Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1979, Page 108
106
Árbók Háskóla íslands
héldu fyrirlestra um rannsóknir við Kröflu á
IAVCEI-þingi í Hawaii í júlí 1979.
Níels Óskarsson hélt fyrirlestur um efna-
fræði reikulla gosefna á ráðstefnu í Bend,
Oregon í Bandaríkjunum í september
1979.
Sama ár hélt Guðmundur E. Sigvaldason
fyrirlestur um reikul efni í jarðhita- og
kvikukerfum á Nobel-ráðstefnu í Karl-
skoga í boði sænsku akademíunnar.
Gestir
í síðustu Árbók láðist að geta þess, að pró-
fessor Peter C. Rickwood frá Sidney í
Ástralíu vann að rannsóknum við stofnun-
ina frá 1. sept. 1975 til 12. júlí 1976.
í apríl 1979 dvaldi dr. Gordon Eaton,
fyrrum forstöðumaður eldfjallarann-
sóknastöðvarinnar á Hawaii, við stofnunina
og hélt m. a. tvo fyrirlestra.
Reiknistofnun háskólans
Inngangur
Reiknistofnun háskólans var stofnuð vorið
1976, en áður hafði Raunvísindastofnun
háskólans annast reikniþjónustu frá árinu
1964. Um hiutverk hennar segirí reglugerð
frá 11. mars 1976, að stofnunin skuli:
a) annast rekstur reiknimiðstöðvar við
Háskóla íslands til úrvinnslu verkefna
kennara og nemenda og annarra starfs-
manna háskólans og stofnana hans,
b) annast reikniþjónustu fyrir aðila utan
háskólans, þó skulu þarfir háskólans
hafa forgang,
c) gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestr-
um til kynningar á nýjungum og fást við
Starfslið
Auk forstöðumanns starfa við stofnunina
einn jarðfræðingur, einn jarðeðlisfræðing-
ur, einn skrifstofumaður, einn rannsókna-
maður, einn rennismiður, einn rafeinda-
tæknifræðingur, bókavörður í hlutastarfi og
einn ritari/gjaldkeri.
Auk þess hefur stofnunin til umráða
fimm stöður styrkþega.
Húsnæðismál
Norræna eldfjallastöðin er til húsa í Jarð-
fræðahúsinu (gömlu Atvinnudeildarbygg-
ingunni), sem hún deilir með öðrum.
Fjármál
Fjárhagsárið 1978 voru útgjöld stofnunar-
innar ísl. kr. 88.937.000.
Guðmundur E. Sigvaldason
hver þau verkefni önnur, er stuðlað geta
að eflingu þjónustustarfsemi Reikni-
stofnunarinnar.
Frá árinu 1976 hefur tölvusalur
Reiknistofnunar verið í.l. áfanga verk-
fræði- og raunvísindadeildar, en skrifstofur
í timburviðbyggingu við suðurenda þess
húss. Timburhúsið eyðilagðist í eldi haustið
1977, en var endurbyggt.
Tölvubúnaður
Síðan Reiknistofnun hóf starfsemi sína hef-
ur orðið mikil og ör þróun í tölvumálum
háskólans. Sú þróun byrjaði með tveim
rausnarlegum gjöfum. Árið 1976gaf IBM á