Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Page 152
2005. Enginn situr nú í stöðu dósentsins vegna seinagangs af hálfu deildarstjórnar
að auglýsa stöðuna að nýju í tæka tíð en það var þó gert fyrir áramót 2005/2006.
Aðrir starfsmenn eru Vilhjálmur Rafnsson, prófessor. en Hrafn Tulinius, prófessor
emeritus. hefur starfsaðstöðu á rannsóknarstofunni. Staða Sigurðar Thorlacius.
dósents í tryggingalæknisfræði. sem kostuð eraf Tryggingastofnun ríkisins og öðr-
um færðist af fræðasviðinu heitbrigðis- og faraldsfræði og hefur hann ekki lengur
aðstöðu á rannsóknarstofunni. Ásta Jóna Guðjónsdóttir, ritari, fluttist til í starfi inn-
an læknadeildar að eigin ósk og hefur ekki fengist ráðinn annar ritari að rann-
sóknastofunni í hennar stað, þó eftir því hafi verið leitað við deildarstjórn. Evald Sæ-
mundsen er í doktorsnámi við rannsóknarstofuna og er áætlað að hann Ijúki dokt-
orsprófi vorið 2007. Oddný S. Gunnarsdóttir lauk MPH (master of public health) frá
Nordic School of Public Health í desember 2005, hún stundar nú doktorsnám við
sama skóla með aðstöðu og handleiðslu á rannsóknarstofunni. Fjöldi starfsmanna
er breytilegur frá ári til árs og er hann háður rannsóknarstyrkjum.
Rannsóknir
Rannsóknarstofa í heilbrigðisfræði sinnir faraldsfræðitegum rannsóknum einkum
á sviði krabbameina og smitsjúkdóma. Gerðar eru rannsóknir á krabbameins-
hættu meðal atvinnuftugmanna og ftugfreyja. Tilefni þeirra rannsókna er að ftug-
fótk verður fyrir geimgeislun í störfum sínum. Vegna þessara rannsókna er í
gangi samstarf við aðra rannsakendur á hinum Norðurlöndunum (NoESCAPE).
sem einnig eru að athuga krabbameinshættu flugfótks hverjir í sínu tandi. Hópar
ftugfólks eru síðan sameinaðir til þess að fá tölfræðilega áreiðanlegri niðurstöður.
Athugað er nýgengi krabbameins í samvinnu við krabbameinskrár á Norðurlönd-
um. Auk þessarar samvinnu við Norðurtandamenn er rannsóknarstofan einnig í
samvinnu um evrópskar ftugmanna- og flugfreyjuathuganir og eru það dánar-
meinarannsóknir sem einnig er einkum ætlað að meta krabbameinshættu vegna
geimgeislamengunar (ESCAPE). I því samstarfi eru aðilar frá níu Evrópulöndum.
Evrópusamstarfið hefur leitt til birtinga á niðurstöðum á undanförnum árum og er
það enn í gangi. Niðurstöður rannsóknanna á flugfólki benda til að það sé í meiri
hættu en aðrir að fá illkynja sortuæxli í húð og að flugfreyjum sé hættara við
brjóstakrabbameini en öðrum konum.
í tengslum við rannsóknirá krabbameinshættu meðal flugmanna hefurverið
gerð sérstök athugun á því hvort flugmönnum er hættara við að fá ský á auga-
stein en öðrum. Vitað er að jónandi geislar geta valdið skemmdum og skýmyndun
á augasteini. í þessari rannsókn. en niðurstöður hennar hafa þegar verið birtar í
The Archives of Ophthalmology. kom í tjós að flugmönnum er hættara við að fá
ský í kjarna augasteins og að þessi skýmyndunarhætta tengist því magni geim-
geisla sem þeir hafa orðið fyrir á flugmannsferli sínum.
Rannsóknarverkefni er í gangi um áhættuþætti illkynja sortuæxla meðal úrtaks
íslensku þjóðarinnar og er nú unnið að verkefnum sem miða að því að skýra or-
sakir hækkunar á nýgengi sortuæxla. sem átt hafa sér stað ár frá ári hér á landi
og tengjast þessar rannsóknir flugáhöfnunum.
Önnur rannsóknarverkefni beinast að krabbameinshættu tengdum starfsstéttum
svo sem bændum. Og sérstakt verkefni er um krabbameinshættu við kísilgúr-
framleiðslu.
Á sviði sóttvarna hafa farið fram rannsóknir á faraldri af völdum Salmonelta typhi
murium DT 204b sem gekk yfir hér á landi haustið 2000. Þessi rannsókn hefur
verið unnin í samvinnu við sóttvarnarstofnanir í Bretlandi, Hollandi og Þýskalandi
þar sem faraldursins varð einnig vart. Rannsókn á bólusetningu gegn HPV (Hum-
an Papilloma Virus) sem veldur teghálskrabbameini og kynfæravörtum hófst á
árinu 2001 í samvinnu við Krabbameinsfélag íslands og lyfjafyrirtækið Merck. Þá
var hafinn undirbúningur að rannsókn á orsök niðurgangspesta hér á tandi í
samvinnu við Sýklafræðideild Landspítala-háskólasjúkrahúss á árinu 2002.
Einnig hófst á árinu 2005 undirbúningur að rannsókn á lifrarbólgu C veirusýkingu
hjá HIV sýktum einstaklingum og áhrifum hennar á horfur HIV sýktra sjúklinga,
sem eru til eftirlits við Veirufræðideild LSH. Þá hófst undirbúningur að rannsókn á
algengi lifrarbólgu B og C á meðal innflytjenda til íslands í samvinnu við Sigurð
Ólafsson, smitsjúkdómadeild LSH. Lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur og Barnaspítala Hringsins.
Doktorsnemar
Doktorsverkefni Evatds Sæmundsen fjatlar um einhverfu og er vinnutitill ritgerðar
hans: Autism in lceland. Study on detection. prevatence, and relation of epitepsy
in infancy and autism spectrum disorders. Verkefnið skiptist í nokkra hluta sem
148