Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Page 232
Tilraunastöð Háskóla íslands
í meinafræði að Keldum
Almennt yfirlit og stjórn
Tilraunastöðin tengist læknadeild HÍ og hefur sérstaka stjórn og sjálfstæðan fjár-
hag. (stjórn tilraunastöðvarinnar voru: Stefán B. Sigurðsson, prófessor (formað-
ur). Eggert Gunnarsson. dýratæknir. Halldór Runólfsson. yfirdýralæknir. Páll Her-
steinsson, prófessor og Sigurbjörg Þorsteinsdóttir. ónæmisfræðingur. Forstöðu-
maður er Sigurður Ingvarsson, prófessor og framkvæmdastjóri er Helgi S. Helga-
son. viðskiptafræðingur. Starfseminni er skipt í þrjár fagdeildin 1) Veiru- og sam-
eindalíffræðideild. yfirmaður er Bergtjót Magnadóttir. 2) Bakteríu- og sníkjudýra-
deitd, yfirmaður er Eggert Gunnarsson og 3) Fisksjúkdómadeitd, yfirmaður er
Sigurður Helgason. Alls inntu 65 manns tæplega 50 ársverk af hendi á starfsárinu
°g er það svipað og árið áður. Fimm starfsmenn unnu við stjórnsýslu. á skrifstofu
°g við afgreiðstu. Sérfræðingar voru alls 17 og þeim til aðstoðar hátt í þrír tugir
háskólamenntaðs. sérmenntaðs og ófaglærðs starfsfólks. Dr. Herborg Hauksdótt-
ir. líffræðingur. fór til annarra starfa. Jóna Aðalheiður Aðólfsdóttir. lífeindafræð-
ingur, kom til starfa í príonfræðum.
Rannsóknir
Meginviðfangsefni er rannsóknir á sjúkdómum og varnir gegn þeim, einkum í
dýrum. Helstu rannsóknasviðin voru ónæmis- og sjúkdómafræði fiska. hæggeng-
ir smitsjúkdómar. þ.e. mæði-visna. riða og skytdir sjúkdómar, sumarexem í hest-
um og sníkjudýra- og sýklafræði. Altmargir áfangar náðust sem kynntir voru á
fjötmörgum ráðstefnum hérlendis og ertendis. í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum
birtust niðurstöður rannsókna á mæði-visnu veiru, riðu. ónæmiskerfi þorsks og
lúðu, bóluefnum gegn fisksjúkdómum, Campytobacter. hnýslum í hreindýrum,
btóðögðum. hrossalús og krabbameini. Unnið var að alþjóðtegum samvinnuverk-
efnum styrktum af Evrópusambandinu. þ.e. á príonsjúkdómum og lentiveirum.
Ennfremur styrkti Agricultural Research Service í Bandaríkjunum rannsóknir á
faratdsfræði Campylobacter. Flestir sérfræðingar stofnunarinnar eiga samstarf
við innlenda- og erlenda vísindamenn. Sigrún Lange lauk Ph.D. prófi og titill dokt-
orsritgerðar er: The complement system of two teleost species with emphasis on
ontogeny. Tekin var upp ný aðferð tit riðuskimunar. þ.e. ELISA-próf. Sértekjur
fengust vegna útseldrar sérfræðivinnu. einkum vegna sjúkdómagreininga. Til-
raunastöðin framleiddi bóluefni og mótefnablóðvökva gegn bakteríusjúkdómum í
sauðfé. Einnig var safnað blóði úr hrossum. kindum og naggrísum tit notkunar á
rannsóknastofum. Smádýr voru ræktuð til notkunar við titraunir. bæði fyrirTil-
raunastöðina og aðrar rannsóknastofnanir.
Kynningarstarfsemi
Auk þess að birta greinar í vísindatímaritum þá var ársskýrslu dreift víða og tit-
raunastöðin tók þátt í útgáfu tímaritsins lcetandic Agriculturat Sciences. Fræðslu-
fundir. haldnirað jafnaði hálfsmánaðarlega. voru öltum opnir og kynntir víða m.a.
öltum háskólaborgurum og dýralæknum. Eins dags ráðstefna um príon og hæg-
gengar veirur var haldin til heiðurs fyrrverandi forstöðumönnum Ketdna. Guð-
mundi Georgssyni og Guðmundi Péturssyni. ítarlegar upplýsingar um starfsem-
ina eru á heimasíðu. www.keldur.hi.is.
Annað
Framlög á fjárlögum voru um 141 m.kr., sértekjur um 87 m.kr. og styrkir um 51
m.kr. Auk erlendra styrkja vegna samstarfsverkefna fengust styrkir fyrir ýmis
önnur verkefni frá Rannsóknamiðstöð íslands. Rannsóknasjóði Háskóta íslands.
Framleiðnisjóði Landbúnaðarins og sjávarútvegsráðuneytinu.
Umhverfisstofnun
Á árinu 2005 varð til ný stofnun við samruna Umhverfisstofnunar og Sjávarút-
vegsstofnunar. Stofnun Sæmundar fróða. stofnun um sjátfbæra þróun og þver-
fræðilegar rannsóknir við Háskóla (slands. Þar með lauk formtegri starfsemi Um-
hverfisstofnunar sem stofnað var til árið 1997. Rannsóknar- og samstarfsverkefni
Umhverfisstofnunar fytgja henni til nýrrar stofnunar. en umsjón með meistara-
nemum í umhverfisfræðum fluttist til nýrrar meistaranámsbrautar í umhverfis-
og auðlindafræðum. sem er í samstarfi sex deilda og umsjón raunvísindadeildar.
Gerð er grein fyrir helstu rannsóknarverkefnum á árinu 2005 hér að neðan.
228