Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Page 240
• Sjálfssögun Minni. minningar og saga. Sigurður Gylfi Magnússon.
• Software Development. Oddur Benediktsson ritstjóri.
• Stigi Wittgensteins. Logi Gunnarsson.
• Subversive Scott: The Waverley Novels and Scottish Nationalism. Julian Mel-
don D'Arcy.
• Surtsey, Ecosystems Formed. Sturla Friðriksson.
• Surtsey. Entstehung von Ökosystem. Sturla Friðriksson.
• Technology in Society - Society in Technology. Ritstjórar Örn Jónsson o.fl.
• The First Settler of the New World. Jónas Kristjánsson.
• The Mosaic of Gender. Steinunn Hrafnsdóttir.
• Tveir heimar. Þorvaldur Gylfason.
• Ungir íslendingar í tjósi vísindanna. Ráðstefnurit.
• Verk handa þinna. Kristinn Ólason.
• Við og veröldin. Sverrir Jakobsson.
• Þá varð landskjálpti mikill. Ritstjórar Jón Börkur Ákason o.fl.
Landsbókasafn
íslands - Háskólabókasafn
Stjórn
Samkvæmt lögum um Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn skipar mennta-
málaráðherra fimm menn í stjórn bókasafnsins til fjögurra ára í senn þannig að
tveir eru skipaðir að tilnefningu háskólaráðs Háskóla íslands. þeir Rögnvaldur
Ólafsson og Hjalti Hugason, Vilhjátmur Lúðvíksson tilnefndur af vísindanefnd Vís-
inda- og tækniráðs og Eydís Arnviðardóttir tilnefnd af Upplýsingu - Félagi bóka-
safns- og upplýsingafræða. Stjórnarformaður er Hörður Sigurgestsson, skipaður
af menntamálaráðherra, án tilnefningar. Varamenn eru skipaðir með sama hætti.
Fulltrúi starfsmanna er Stefanía Arnórsdóttir. Fundi sitja einnig að jafnaði lands-
bókavörður, aðstoðarlandsbókavörður og fjármálastjóri safnsins.
Framkvæmdaráð
Framkvæmdaráð safnsins hittist að jafnaði vikulega og tekur ákvarðanir um
rekstur safnsins. í framkvæmdaráði sitja Sigrún Klara Hannesdóttir, landbóka-
vörður. Þorsteinn Hallgrímsson aðstoðarlandsbókavörður, Edda G. Björgvinsdóttir,
fjármálastjóri og sviðsstjóri rekstrarsviðs, Áslaug Agnarsdóttir. sviðsstjóri þjón-
ustusviðs og Kristín Bragadóttir. sviðsstjóri varðveislusviðs til 15. september. Frá
þeim tíma tók nýr sviðsstjóri varðveislusviðs. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir. við
því starfi þegar Kristín fór í fjögurra ára leyfi. Framkvæmdaráð hélt alls 35 fundi á
árinu 2005 og eru allar fundargerðir ráðsins birtar á Inngangi. innri vef safnsins.
Árangurssamningur við menntamálaráðuneyti
Þann 29. desember var skrifað undir árangurssamning milli Landsbókasafns og
menntamálaráðuneytis við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsi. Tilgangur
samningsins er að festa í sessi ákveðið samskiptaferli milli ráðuneytis og stofn-
unar. auk þess að draga fram áherslur vegna stefnumótunar og áætlanagerðar. [
samningnum er gerð grein fyrir hlutverki safnsins í samræmi við lög og reglu-
gerðir og gerð grein fyrir að ráðuneytið muni beita sér fyrir því að fjárveitingar
verði í samræmi við áherslur og markmið í samningnum. Framtíðarsýn safnsins
var sett fram 2003 og er eftirfarandi:
„Landsbókasafn (slands - Háskólabókasafn er hornsteinn í öflun, varðveislu og
miðlun þekkingar um íslenskt samfélag og á sviði vísinda og fræða. Safnið er
þekkingarveita sem vinnurað því að veita faglega upplýsingaþjónustu um ís-
lenskt samfélag og tryggja að [slendingar standi jafnfætis öðrum þjóðum hvað
varðar aðgengi að hvers kyns þekkingu og upptýsingum."
[ nýja árangurssamningnum var kallað eftir sérstökum markmiðum og áherslum
í starfi stofnunar þar sem tækifæri gafst til að kynna áherslur á hlutverki safnsins
sem þekkingarveitu, þ.e. stofnun sem leggur sig fram um að veita þekkingu til
samfélagsins fremur en að fólk þurfi að koma í safnið til að ná í þá þekkingu sem
til er í heiminum. [ samræmi við tvöfalt hlutverk safnsins hafa áherslurnar í starf-
semi safnsins verið einkum tvenns konan
• Stafrænt íslenskt þjóðbókasafn. sem tengist áherslum safnsins við að koma
íslensku efni í stafrænt form og gera það aðgengilegt í gegnum vef safnsins.
236