Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 58
54
BÚNAÐARRIT.
fól ráðunaut eftirlitið og gaf út í því skyni reglur
um, hvernig því eftirliti skyldi háttað. Eru þær
reglur til sýnis fyrir fundarmenn, svo og skýrsla
ráðunauts um búið.
4. Síðastl. vetur veitti Búnaðarfélag íslands Jóni fjár-
ræktarmanni Þorbergssyni 150 kr. styrk til að kynna
sér sauðfjárrækt á Sambandssvæðinu og til eftirlits
og leiðbeininga fyrir bændur í sauðfjárrækt, en fól
jafnframt stjórn Sambandsins, að leiða starfsemi
hans og vera í ráðum með honum. Stjórnin ákvað,
að Jón skyldi ferðast um alt Sambandssvæðið, og
sótti í því skyni um 100 kr. viðaukastyrk handa
honum til Bfl. ísl., sem það og veitti.
Stjórnin er í engum efa um, að þessi ferð hafi
orðið til stór-mikils gagns og vakningar, og telur
þetta mjög vel ráðið af stjórn Búnaðarfélagsins.
5. Stjórnin hefir samið reglur fyrir úthlutun verðlauna
á búfjársýningum, og komið sér jafnframt í sam-
vinnu við Búnaðarfélag íslands í því atriði. En
ekki er það mál endilega útkljáð enn, enda er helzt
í ráði að koma á samkyns reglum um land alt.
6. Námsskeiðum til bændafræðslu var ekki unt að
koma á síðastl. vetur, bæði fyrir fjárskort Sam-
bandsins og vegna ótiðar.
7. Verkfærasýning við gróðrarstöðina var opin sumarið
1909.
8. Verðlaun fyrir góða fjárhirðingu hafa verið veitt,
eins og að undanförnu, með þriðjungs framlagi frá
Sambandinu móti 2/b frá hlutaðeigandi hrepps-
félögum.
9. Pantanir verkfæra, sáðtegunda, áburðar o. fl. hafa
verið, eins og að undanförnu, framkvæmdar af ráðu-
naut, fyrir búnaðarfélög og einstaka menn, og hafa
þær numið árið sem leið kr. 4550,00.
10. Um störf ráðunauts að öðru leyti vísast til skýrslu
hans til stjórnarinnar, dags. 31. jan. þ. á.