Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 90
86
BÚNAÐARRIT.
handverkfæri og girðingarefni. Sambandið hefir fengið
áhöld þessi til sýnis um óákveðinn tíma endurgjaldslaust.
Auk þess, er getið hefir verið, hefir verið keypt eitt
gaddavírs-ávinsluherfi frá S. B. Jónssyni á Reykjum og
ýms smááhöld frá C. Th. Rom & Co. i Kaupmannahöfn.
Sambandið hefir, nú orðið, til sýnis allmikið safn af
stærri og minni verkfærum, þótt enn vanti ýmislegt,
sem nauðsynlegt væri fyrir almenning að þekkja. Slíkar
sýningar auka þekkingu manna á verkfærum og styðja
að útbreiðslu þeirra; en vöntun á verkfærum og van-
kunnátta í notkun þeirra standa öllum verklegum fram-
förum mjög fyrir þrifum.
Fjöldi manna hefir kornið til að skoða gróðrarstöð-
ina í ár, og hefir verkfærasýningin átt drjúgan þátt í því.
10. Veðurathuganir.
í ár hafa í fyrsta skifti verið gerðar nokkrar veð-
urathuganir í sambandi við gróðrarstöðina. En þótt.
áhöld hafi verið fá og sum ófullkomin, er enginn efi á,
að hér er að ræða um þýðingarmikið mál, er þarf að
vanda sem bezt, og þá mun á sínum tíma mikið mega
græða á þvílíkum athugunum.
Athuganirnar byrjuðu 1. júlí og hefir verið haldið
áfram síðan. Þær fara fram þrisvar á dag: kl. 8 f. m.,
2 e. m. og 0 e. m., og er þá ákveðin vindst.aða og
otyrkur, skýjamagn, lofthiti, loftraki og úrkoma (mæld
þegar hægt er).
Hér á eftir fylgir ofurlítill útdráttur úr athugunar-
skýrslunum á tímabilinu frá 1. júlí — 31. des.
Júli. Meðalhiti + 10,43°. Á 8 dögum hefir mestur
hiti dagsins eigi náð meðalhita mánaðarins. Úrkomudagar
5 (þokudagar eigi meðtaldir).
Ágúst. Meðalhiti + 9,49°. Á 2 dögum hefir mestur
hiti dagsins eigi náð meðalhita mánaðarins. Úrkomu-
dagar 13.
September. Meðalhiti -f- 8,15°. Á 7 dögum hefir