Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 107
BÚNAÐARRIT.
103
Sýningavnefndin auglýsir sýningarstað og tíma, á-
samt skilyrðunum lil þess að keppa um verðlaun, og
hámarkinu fyrir hæð verðlauna. Einnig ákveður hún
þann tíma, þegar skráningunni til sýningarinnar þarf að
vera lokið, og ekkert hross, sem ekki er skráð fyrir
þann tíma, getur fengið aðgang að sýningunni. Hún sér
einnig um, að aubveldur aðgangur sé fyrir héraðsbúa
til að skrá hross sín, t. d. eitt skráningarskjal í hver-
jum hreppi. Að því búnu semur hún eina skrá yfir
hross til sýningarinnar, og ætti helzt að prenta þá skrá
■og gefa mönnum kost á að fá hana á sýningarstaðnum.
Að þessu búnu sér sýningarnefndin um útvegun og
undirbúning á sýningarstað. í fyrstu verður efalaust að
láta nægja, að hafa nógu stóra rétt til þess að rúmt
verði á öllum hryssunum þar inni, en sérstakan útbún-
að þarf altaf fyrir graðhesta. Sé þeir mjög fáir, þá má
notast við að reka niður og skorða vel sterka stólpa,
með að minsta kosti 7 álna millibili og binda þá þar
við. Stólpana ætti að hafa í beinni línu, og til þess að
folarnir snúist ekki alt í kring um stólpana, þá ætti
annaðhvort að strengja á milli þeirra reipi um lVs alin
frá jörðu eða negla spíru á milli þeirra. Miklu betra
væri, að skorða vel stólpa með um 4^2 alinnar milli-
bili og tengja þá saman með sterkri spíru eða planka,
IV2—l3/* al. frá jörðu. Reka síðan niður stólpa með
21/* alinnar millibili í 2 álna fjariægð frá hinni stólpa-
röðinni, og hafa síðan slár eða bönd úr þeim stólpum
yflr í plankann eða spíruna. Hver hestur hefði þá
«inn bás.
Líkur útbúnaður þyrfti að vera til fyrir svo marg-
ar hryssur, sem ætla má að fái verðlaun, en þéttara
mundu þær jmega standa en graðhestarnir, án þess að
skaði hlytist af því.
Auðvitað þarí að veija sýningarsvæðið þannig, að
það sé slétt og helzt grasgróið.