Búnaðarrit - 01.01.1912, Page 236
232
BÚNAÐARRIT
Það var látið sem þunt lag meðfram veggjunum. Þegar
nokkuð var farið að hækka í tóftinni, var hestur látinn
niður i hana, og reið drengur honum fram og aftur og
sérstaklega meðfram veggjunum, til þess að troða heyið
sem bezt saman.
Þegar búið var að aka há í tóftina, sem svaraði
200 hestum af þurrabandi, lét eg aka sem svarar 100
hestum af útheyi, sumu nýslegnu, en sumt hafði staðið
á aðra viku í sjógöltum niðri á engi. Þann 20. var
sama sem enginn hiti kominn í hána, um 30° C. í miðju
og litlu meiri út við veggi. Nú beið eg til þess 24., til
að vita, hvort ekki ykist hitinn, vildi heizt að hann
kæmist í 70°—80°, svo að eg fengi sæthey. En svo
varð ekki. Eg hafði þjappað heyinu alt of mikið saman
og varð að sætta mig við súrheysgerð. Þann 24. ág.
lét eg aka heim alt að 100 hest.um af útheyi og bæta
ofan á hána. Var þá tóftin loksins sléttfull. Þorði eg
nú ekki að láta lengur dragast að fergja heyið, og lét
því næsta dag, þann 25., tyrfa vandlega yfir heyið og
bera á það grjót, er nam 100 ® á hvert fsrfet. Hitinn
var þá og við síðari mælingar, sem hér segir:
Mánaðardagar:
25. ágúst
30. ------
10. sept.
I miðju:
34°
35°
27°
A. V. S. horni:
35—40°
35—40°
30—35°
N. liorni:
55°
55°
49°
Þann 1. október var hitinn enn mældur, en þá
brotnaði súrheysmælirinn; skrúfurnar biluðu, hólkurinn
glentist sundur og hita.mælirinn brotnaði, svo að ekki
var hægt að lesa af. Áætluðum við hitann þá, sem var
mjög lítill, hér um bil 13-—20°.
Eftir það var ekkert átt við heyið fyrri en um há-
tíðir. Þá var búið að gefa rófur, um 200 tn., og var
þá byrjað á súrheyinu. Fremst við dyrnar var 10" þykt
lag ónýtt. Þar fyrir innan var heyið ornað, ognú velgja
í því, 20—30°. Auðvitað hefir komist loft að því frá
dyrunum. Væri bezt að múra upp í þær á hverju