Hugur - 01.01.1988, Page 26

Hugur - 01.01.1988, Page 26
ÞUNGIR ÞANKAR HUGUR Aristóteles gerði sér að sjálfsögðu grein fyrir mikilvægi einfaldleikans eins og Grikkir almennt gerðu, og margir af fyrirrennurum hans höfðu sett fram eins-efnis tilgátur. En Aristóteles sá á slíkum kenningum alvarlegan annmarka: Hin sameiginlega villa allra eins-efnis tilgátna er, að þær leiða ekki til nema einnar náttúrulegrar hreyfingar, sem þá hlýtur að vera eins fyrir alla hluti. Ef þannig allir hlutir eru af einni gerð, þá hljóta þeir allir að hreyfast eins... [Og aftur] ef aðeins væri til eitt efni, þá hlytu allir hlutir að leita upp á við, eða allir niður á við.44 Röksemd Aristótelesar gegn eins-efnis kenningum er í stuttu máli sú að honum sýnist slíkar kenningar ekki geta skýrt mun- inn á hreyfingu fastra, vökvakenndra og loftkenndra efna. Newton sneiddi hjá þessari mótbáru með því að sýna fram á að allir hlutir gætu hreyfst samkvæmt einu lögmáli (tregðulög- málinu) án þess að það leiddi til þess að þeir hreyfðust allir í sömu átt. VII Kenningin um náttúrulega hreyfingu er að sjálfsögðu ekki nema hluti af aflfræði Aristótelesar. Að himinfestingunni undanskilinni eru hreyfingar hluta í heiminum, dauðra sem lifandi, að mestu leyti „þvingaðar“. Náttúruleg hreyfing getur ekki verið nema upp eða niður eftir beinni línu, sem á endanum lyki í algjörri kyrrstöðu. En sá heimur sem við þekkjum er hreint ekki í kyrrstöðu, og við verðum sjaldnast vitni að hreyfingum sem eru lóðréttar eða í beina línu. En önnur hreyfing kallast „þvinguð“ eða „ónáttúruleg“, eins og fram hefur komið, og stafar af einhverjum utanaðkomandi áhrifum. Svo dæmi sé tekið, kasti ég steini á ská upp í loftið, þá er hreyfing hans upp á við og lárétt þvinguð samkvæmt Aristótelesi. Eftir skamma stund er þvingunarorkan, sem ég gaf steininum, uppurin. Náttúmleg hreyfing hans tekur völdin og hann snýr til jarðar. Þessi skipting í náttúrulega og þvingaða hreyfingu er grundvallaratriði í aflfræði Aristótelesar, eins og í aflfræði 44 Um himnana 304bl2-15; einnig 312b22-23 og textinn þar um kring. 24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.