Hugur - 01.01.1988, Síða 70

Hugur - 01.01.1988, Síða 70
SIÐFRÆÐIN OG MANNLÍFIÐ HUGUR sem manninum er fyrir bestu. Þótt menn hafi fengið gott sið- ferðilegt uppeldi þá á heimspekileg siðfræði - og sérstaklega skynsamlegar samræður um siðferðileg efni - að auðvelda þeim að greina siðferðileg viðfangsefni og leysa þau á farsælan hátt. Ábendingin sem í þessu felst er sú að það sem við þurfum á að halda eru ekki fleiri eða annars konar siðfræðikenningar heldur meiri og annars konar siðferðileg umræða. Við þörfn- umst að vísu hógværari siðfræði sem gerir sér grein fyrir stöðu sinni og takmörkunum. En einkum og sérílagi þarf siðfræðin að taka mið af því að raunverulegt form siðferðilegrar orð- ræðu er ekki einræða samviskunnar við sjálfa sig og siðaregl- umar, heldur samræða manna í tilteknum aðstæðum um til- tekin úrlausnarefni. Þar hlýtur siðfræðin alltaf að hefjast og þangað hlýtur hún ávallt að hverfa. Reglur og forskriftir sið- fræðinnar geta í besta falli verið til áminningar og viðmiðunar í rökræðum manna um siðferðileg efni, efni sem em í senn per- sónuleg og félagsleg en em ekki fræðileg sem slík. Það sem skiptir meginmáli í öllum slíkum samræðum er hvemig að þeim er staðið, hvort menn em einlægir og hlýða skynsam- legum rökum eða beita ofbeldi og óheilindum af einhverju tagi. Útfrá þessu sjónarmiði em kröfur existensíalismans og marx- ismans ákaflega mikilvægar. Forsenda siðferðilegrar orðræðu er persónuleg ábyrgð og heilindi allra þátttakenda og hún krefst þess jafnframt að tekið sé á viðfangsefninu á gagnrýnan hátt í Ijósi félagslegra og sögulegra aðstæðna. Viðfangsefni siðfræðinnar em mannleg samskipti og þau eiga sér yfirleitt stað í formi samræðna í víðum skilningi þess orðs. Eitt það mikilvægasta sem okkur er gefið umfram aðrar lífvemr er tungumálið og í því felst hæfileikinn til þess ræða mál okkar og ráða þeim réttlátlega til lykta. Óréttlæti og spilling hvers konar nærist ekki síst á því að málefni em ekki dregin fram og rædd fyrir opnum tjöldum. Mjög mörg þeirra vandamála sem við stöndum frammi fyrir í lífinu, hvort heldur er á heimili, á vinnustað eða annars staðar á vettvangi dagsins, em þess eðlis að þau verða ekki leyst nema með því að fólk ræði saman í einlægni og af hreinskilni. Þetta á auðvitað ekki síður við á opinberum og alþjóðlegum vettvangi, svo sem í 68
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.