Hugur - 01.01.1992, Side 56

Hugur - 01.01.1992, Side 56
54 Hreinn Pálsson HUGUR * Sumum nemendum Heimspekiskólans er strítt á skólavistinni, mig grunar að þeim sé meira strítt en t.d. tónlistarskólanemendum. * Yngri nemendum, 6-9 ára, er mun tamara að hugsa heimspekilega en eldri nemendum, 11-14 ára. Þau yngri eru náttúrulegir heim- spekingar. Heimspekigáttina þarf að opna á ný hjá þeim eldri. Mér finnst nokkur bjartsýni hafa verið ráðandi í þessum lestri. Þetta er nú bara lestur, hvað með sjálfan grunnskólann? Kollegi minn, Sigurður Björnsson, segir að málið sé tapað verði heimspekin tekin inn í grunnskólann við óbreyttar aðstæður. Hann ætti að vita það, hann kennir við tvo grunnskóla sem stendur. Ég held raunar að fundarstjóri, Ásgeir Beinteinsson, hafi komist að svipaðri niðurstöðu suður í Sandgerði. Þar varð minna úr heimspekiástundun en til stóð. Fyrrum nemandi minn, Helgi Jósteinsson, fór af stað í mikilli bjartsýni síðastliðið haust og fór að nota Uppgötvun Ara með 12 ára nemendum í Vesturbæjarskóla. Það hefur ekki gengið sem skyldi, krökkunum hefur leiðst og þau hafa sýnt efninu lítinn áhuga. Þorsteinn Hjartarson hefur notað sama efni á annað ár með góðum árangri. Ég held að þetta sé millibilsástand og að við eigum ekki annað fley skárra en barnaheimspekina ef við ætlum okkur að sigla út úr núverandi hugmyndakreppu í mennta- og uppeldismálum. Þess utan á heimspekin tvímælalaust rétt á sér sem námsgrein í öllum skólum; bæði vegna eigin verðleika og líka vegna þess að hún styrkir aðrar greinar. Þyngstu rökin gegn henni eru að vísu ákaflega þung sem kerfisrök og hljóma einhvern veginn si svona: Það er ekkert pláss í stundaskránni fyrir nýja námsgrein, því miður! Önnur rök lúta að undirbúningi kennara. Það er vissulega rétt að kennaramenntun í opinberum skólum miðar hvorki að því að kenna heimspeki né þjálfa samræðuleikni þrátt fyrir að vart verði við vaxandi áhuga kennara á heimspekilegum fræðum. Ég held að það mál leysist með tíð og tíma, kannski með því að stofna nýjan og óháðan háskóla sem einbeitir sér að menntun kennara. Kannski með samvinnu við endurmenntunardeildir og það er þegar vísir að slíkri samvinnu við KHÍ, málið snýst hins vegar um meira en kennsluhátta". Um rökstuðning fyrir að ríkjandi félagsmótun sé heimspekilegum hugsunarhætti fjandsamleg má lesa í Pliilosopliy and llie Yoimy Child (Harvard University Press 1980). Mig grunar að sömu rök gildi hér á landi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.