Hugur - 01.01.1996, Qupperneq 15

Hugur - 01.01.1996, Qupperneq 15
Af tvennu illu 13 hér, enda er ég viss um að boðberi kenningar sem heimtaði að Þórði á stofu 6 væri fómað hyggi fyrirfram í harðan skalla hjá þorra lesenda. Áður en ég legg dæmisögumar góðu undir dóm almennra siðferðis- kenninga svo sem nytjastefnu eða dygðafræða - en það ætla ég mér að gera hér á eftir - ber þess þó að geta að ýmsir teldu sögumar óbrotnari en svo að við þyrftum að leita á náðir einhverra almennra siðferðisfce/mmga til að ráða fram úr þeim. Hitt nægði, að leggja á þær mælistiku mun afmarkaðri siðferöisreglna sem gildi, eða eigi að gilda, í mannlegu félagi. Hyggjum, áður en lengra er haldið, að þremur slíkum kostum sem stungið hefur verið upp á. Sá fyrsti er reglan um tvenns konar afleiðingar athafna („doctrine of double effect“) sem kaþólikkar hampa einatt öðram fremur. Elizabeth Anscombe kynni að orða hana svo að „menn væra ábyrgir fyrir slæmum afleið- ingum illra verka sinna en hlytu engan sóma af þeim góðu; og á hinn bóginn væru menn ekki ábyrgir fyrir slæmum afleiðingum góðra verka sinna.“9 Þetta hljómar allundarlega við fyrstu sýn en hugmyndin sem að baki býr er sáraeinföld: Það er grandvallarmunur á afleiðingum ásetningsverka eftir því hvort þær eru sjálfar œtlaðar eða einungis fyrirsjáanlegar. Læknir þarf að skera upp þungaða konu; hann sér fyrir að við uppskurðinn muni fóstrið sem hún ber undir belti fyrirsjáan- lega deyja en ásetningur hans er að bjarga lífi móðurinnar, ekki að deyða fóstrið, og því ber hann ekki ábyrgð á hinu síðara þótt það gerist í raun. Þessi regla er fjölrædd og ég hef ekki miklu við þá umræðu að bæta nema að hnykkja á þeirri skoðun minni að reglan sé fáránleg. Hlýtur maður ekki að bera ábyrgð á öllum fyrirsjáanlegum afleið- ingum gerða sinna? Undir lok seinni heimsstyrjaldar léku Japanar þann ljóta leik að binda bandaríska stríðsfanga framan á skriðdreka sína til að koma í veg fyrir að landar þeirra skytu á stríðsvélamar; þeir fengju ekki af sér að drepa eigin félaga og vini. Samkvæmt reglunni um tvenns konar afleiðingar hefði hermanni verið leyfxlegt að skjóta í skriðdrekann til hliðar við fangann, vitandi að þar með spryngi drek- inn í loft upp og fanginn með; en honum hefði verið óleyfilegt að skjóta beint á skriðdrekann, þ.e. beint á fangann framan á honum, Q Anscombe, G. E. M., „Siðfræði nútímans" (þýð. Benedikt Ingólfsson), Heimspeki á tuttugustu öld, ritstj. Einar Logi Vignisson og Ólafur Páll Jónsson (Reykjavík: Heimskringla 1994), bls. 195.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.