Hugur - 01.01.1996, Page 107

Hugur - 01.01.1996, Page 107
Ritdómar 105 Lipman gengur í sögu heimspekinnar og notar hana sem hugmynda- banka, hann dorgar úr henni ráðgátur sem hann kemur síðan fyrir í skáldsögum sínum. Lipman nefnir hvergi heimspekinga eða kenningar þeirra á nafn en þeim sem til þekkja er ljóst hvar hann leitar fanga. Það er reyndar álitamál hvort flokka beri sögur Lipmans sem „skáldsögur", sjálfur hefur hann lýst þeim sem heimspekilegum skopstælingum (philosophical caricature) út frá frumheimildum. Sögumar eiga sér ákveðinn tilgang, þær eru lesbækur nemenda og eiga að nýtast þeim sem stökkbretti fyrir heimspekilegar samræður. Enn ein leiðin til að koma heimspeki á framfæri við böm er að leita alfarið til heimspekilegra bamabókmennta. Gareth Matthews er hér fremstur í flokki og til margra ára hefur hann fjallað um bamabækur út frá heimspekilegum forsendum.2 3 4 Umfjöllun hans felst einkum í því að benda á bækur sem fjalla beint og óbeint um heimspekilegar ráðgámr. Hann hefur einnig fjallað um heimspekilegar barnabókmenntir í bókum sínum, lesendum skal sérstaklega bent á Philosophy and the Young Child frá 1980.3 Lipman, Matthews og Gaarder eru sammála um að heimspeki eigi fullt erindi til bama en þeir fara ólíkar leiðir til að koma henni á framfæri. Að kenna heimspeki Það er vissulega heimspekileg spuraing hvort hægt er að kenna nokkrum manni nokkurn skapaðan hlut! Til eru þeir heimspekingar sem hallast að því að allt eiginlegt nám sé sjálfsnám, að kennarinn geti í besta falli skapað námsaðstæður og verið nemendum góð fyrirmynd.^ Samkvæmt þessu er ekki hægt að stunda kennslu með beinum hætti, heldur einungis óbeinum. Vissulega væri vert að huga nánar að hugtakinu „kennsla" - hér látum við duga að gefa því gaum að kennari stundar naumast starf sitt nema hann þjálfi nemendur sína, fræði þá og sé þeim fyrirmynd. 2 Hann er með fastan póst á fyrstu síðu í Thinking, The Joumal of Philosophy for Children. Lipman ritstýrir tímariti þessu og Institute for the Advancement of Philosophy for Children í New Jersey, U.S.A., gefur út 3 Aðrar bækur Mathews eru Dialogues with Children (1984) og Philosophy of Childhood (1994). Harvard University Press gefur út. 4 Gilbert Ryle kemur sértaklega upp í hugann í þessu sambandi. 1979 gaf Basil Blackwell gaf út litla bók, On Thinking, í ritsjórn Konstantins Kolendas með úrvali greina Ryles um hugsun. Ég bendi sérstaklega á greinina „Thinking and Self-Teaching“ sem holla lesningu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.