Búnaðarrit - 01.08.1915, Blaðsíða 86
244
BTJNAÐARRIT
Kostnað allan við undirbúning tilraunanna, svo sem
girðingar, þar sem þeirra þarf með um tilraunasvæðin,
flóðgarða, er gera þarf, o. s. frv., ætlast eg til að bún-
aðarfélagið greiði. Sömuleiðis hinn árlega kostnað, sem
eigi verður nú annar, eftir að tilraunirnar eru komnar
á stað, en þóknun til þeirra manna, er taka að sér að
gera þær.
í sambandi við þessar tilraunir gæti og komið
til tals að gera tilraun með tilbúinn áburð á áveitu-
engi, til þess að sjá, hverjar verkanir það hefði.
Sýningar. Héraðssýning á hrossum fyrir Árnes-
sýslu, Rangárvallas. og V.-Skaftafellssýslu var haldin að
Þjórsártúni 11. júlí. Skrásett höfðu verið til sýningar-
innar nálægt 100 hross, en sýndar voru 50 hryssur, 24
graðhestar 4 vetra og eldri, og 9 folar 3 vetra.
Verðlaun voru veitt fyrir 13 graðhesta 4 vetra og
eldii, þar á meðal I. verðlaun fyrir tvo hosta, bleilcan
6 vetra, 141 sentim. á hæð, frá Þórarinsstöðum í
Hrunamannahreppi, og rauðan 5 vetra, 136 sentim. á
hæð, frá Stóra-Hofi á Rangárvöllum. Fyrir sjö hesta
voru veitt 2. verðlaun og 3. verðlaun fyrir fjóra. Þá
voru veitt 2. verðlaun fyrir tvo fola 3 vetra og 3. verðl.
fyrir þrjá. Fyrir 30 hryssur voru og veitt verðlaun, þar
á meðal 1. verðlaun fyrir tvær. — í dómnefnd um hrossin
voru ásamt mér þeir Eggert hreppstj. BenecUktsson í
Laugardælum og Runólfur hreppstj. Hálldórsson á
Rauðalæk.
Hrútasýningar voru haldnar í haust bæði norðan-
lands og sunnan. í Eyjafjarðarsýslu voru haidnar 9 sýn-
ingar, og sýndir þar 383 hrútar, og af þeim fengu 337
verðlaun. í Skagafirði voru sýningarnar 11 og sýndir
456 hrútar, og af þeim fengu 387 verðlaun.
Sýningarnar syðra voru í sýsiunum austanfjails, eða
á sambandssvæði Búnaðarsambands Suðurlands. Þær