Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 140
130
BÚNAÐARRIT
í Norður-Þingeyjarsýslu eru hrútarnir svo miklu fleiri
en síðast, af því tveir hreppar voru með nú, sem ekki
voru þá með, að samanburður verður ekki réttur, en
sé hann gerður sýnir hann betri hrúta fullorðna og tvæ-
vetra, en verri veturgamla.
í Norður-Múlasýslu voru sýningarnar yfirleitt 10 dög-
um seinna en síðast. Allir hrútar þar eru nú léttari en
þá, sem sýnilega stafar eingöngu af því að þeir eru
magrari (búnir að leggja meira af), en þó svo sé, þá
eru þeir yfirleitt betri hvað mál snertir, og er sérstak-
lega greinilegt, að hlutföllin í lengdunum eru réttari —
hafa batnað — og mun enski freðkjöts-markaðurinn eiga
mikinn þátt í því. Af málunum kemur ekki fram annað
atriði, sem var áberandi að hrútarnir höfðu batnað með,
en það voru herðarnar, þær voru nú yfirleitt ekki eins
skarpar og síðast.
I Suður-Múlasýslu voru sýningarnar líka seinna á
haustinu en áður, hrútarnir þar eru svipaðir því sem
þeir voru síðast, og yfirleitt ekki betri, og í Austur-
Skaftafellssýslu voru þeir verri. AUur þessi samanburð-
ur gildir sýslu-meðalhrúta. Meðalhrútar í hreppunum
hafa breyzt misjafnt, og í sumum hreppum hafa þeir
batnað, þó meðal hrútar sýslnanna hafi ekki gert
það.
Tveir hrúta þeirra, sem síðast voru sýndir, og sem
báðir fengu I. verðlaun, þeir »Freyr* á Helluvaði og
»Leifur« á Bóndastöðum, eiga nú margá áberandi syni.
Undan »Frey« sá ég 10 hrúta fullorðna, 6 tvævetra og
5 veturgamla. Meðaltöl þeirra voru hvað mál og þyngd
snertir sem hér segir:
Þungi. Brjósl. Hæö. Lofth. Framh. Miöhl. Aflurh. Breidd sp.
Velurgaml. 79 100,8 74,6 30,2 26,2 26,8 26,8 21,2
Tuævetra . 98,3 109.0 80,7 31,7 28,8 29,0 28,8 22,8
Eldri ... 112 112,3 82,3 31,8 29,4 29,9 29,3 23,8
Flestir þessir hrútar hafa sama galla og faðirinn —
baggakvið.