Búnaðarrit - 01.01.1933, Blaðsíða 412
402
BUNAÐARRIT
og það er röskur helmingur þess, sem nefndin telur,
og virðist líta á sem venjulegan reksturskostnað tilrauna-
starfseminnar.
Af þessu eru launagreiðslur, þegar miðað er við áætlun
nefndarinnar um laun framkvæmdarstjóra Ræktunarfél.
kr. 23820,50, og starfsféð verður þá ca. kr. 30000,00.
Þar í eru meðal annars á vegum Dúnaðarfélagsins síma-
leiga ca. kr. 500,00, opinber gjöld ca. kr. 800,00, styrkur
til garðyrkjunáms, utan tilraunastarfseminnar kr. 700,00,
kostnaður við að brjóta og girða Iand á Laugavatni, um
1480 kr., verkfæri ýmiskonar — sem að mestu má telja
til stofnkostnaðar á Sámsstöðum — um kr. 1550,00 o. s. frv.
Fer þá að sneiðast allmikið um eiginlegt starfsfé til
beinnar tilraunastarfsemi, þegar þetta allt er frá talið,
enda þótt að þar megi óbeinlínis telja tekjuféð með sem
reksturslán, og launin að miklu leyti sem starfsfé.
Þegar bornar eru saman áætlanir Búnaðarþings fyrir
árin 1931 og 1932 og reikningar sömu ára, og bygg-
ingarkostnaðinum á Sámsstöðum er sleppt, þá verður
niðurstaðan sú, að til tilraunastarfseminnar er varið því
nær kr. 7200,00 minna en heimilt var, samkv. áætlun,
og verður þá ekki með rökum sagt, að félagsstjórnin hafi
sólundað fé í skipulagslausa tilraunastarfsemi á þessum
árum, umfram það, sem Búnaðarþing 1931 hafði heimilað.
Af hinu sparaða fé eru rösklega 6300 kr. frá tilrauna-
starfseminni á Sámsstöðum og um 2640 kr. frá fóður-
rækt, en garðræktin fór með 1800 kr. yfir áætlun.
Sé þessi sparaða upphæð dregin frá byggingarkostn-
aðinum, þá verða það tæpl. 15900 kr., sem stjórnin hefir
varið til tilraunastarfseminnar, að meðtöldum byggingar-
kostnaðinum, umfram áætlun, en það fé og meira til
hafði hún sparað á öðrum úígjaldaliðum, svo að hún
skilaði álíka tekjuafgangi í árslok 1932 sem áætlað var,
og hafði þó greitt rösklega 12200 kr. af lánum umfram
áætlun. En ráðstafanir stjórnarinnar, um byggingu á Sáms-
stöðum og flutningur garðyrkjutilraunanna að Laugar-