Hlín - 01.01.1917, Page 34

Hlín - 01.01.1917, Page 34
32 Hlin vermireitinn. Áður er búið að leggja liann og sá í hann plöntufræjunum, sem eiga að verða okkur til gagns og gleði á sumrinu. Þeir al nemendunum, sem komnir voru til Akureyrar, þegar vermireiturinn var lagður og sáð í hann, höfðu hjálpað til þess, en hinir urðu að láta sjer nægja lýsinguna eina, og munu þá margir hafa fundið sannleikann í gamla málshættinum: „Sjón er sögu rík- ari.“ Þarna við vermireitinn er liðinu skift. Sumir fara með framkvæmdarstjóranum, Sigurði Baldvinssyni, sem ræður yfir kartöflu- og rófugörðum og grasrækt allri og kennir það, sem þar að lýtur, en flestir verða þó eftir hjá aðalkennaranum, Guðrúnu Björnsdóttur, sem stjórnar vinnu og kennir um allan annan gróður í stöð- inni. Kenslan fer mestöll fram úti, samhliða vinnunni, sent varir 9 tírna á dag. F.n auk Jress var einn kenslutími inni, eftir morgunverð. Hann var ætíð byrjaður með því að syngja lag. í þeim tímum var kent: fyrst aðalatriði almennarar grasafræði og lítils liáttar í jarðfræði, þá voru nemendur látnir skýra frá því, sem þeir áttu að hafa lært úti við, og jrað altaf riljað upp við og \ið. Fyrirlestrar voru lialdnir um Jrað, sem ekki var hægt að kenna verklega, og loks voru nemendur látnir skrifa upp eftir fyrirlestri um meðferð á helstu trjám og nytja- jurtúm, sem fengin er vissa fyrir, að geta Jrrilist hjer á landi. Með þannig löguðu fyrirkomulagi stóð námsskeiðið í (i vikur. Þá l'óru allir, nema við 4 stúlkur, sem ætluðum að renna skeiðið alt sumarið, en það liafði enginn áður gert. Þegar Jressar 6 vikur voru á enda, var vorverkum að méstu lokið, þá var búið að búa plönturnar undir sumarið: koma Jreim í Jrann reit, sem þær áttu að þrosk- ast í, bera að þeim áburð og iosa jarðveginn kringum þær o. fl. Það, sem fyrir okkur lá (ein varð veik og mátti til að hætta), var Jrví að mestu leyti fólgið í Jrví að fylgja þroska þeirra áfram, vökva Jrær, sjá um að ekkert illgresi kveldi þær og lilúa að þeim á allan hátt, og svo

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.