Hlín - 01.01.1927, Page 45
43
Hlín
vaknar milli hreppanna um að framleiða sem best. —
Ef ekkert ákvæði um tölu er sett, verður sýningin líka
of umfangsmikil.
Karla og lcvcnna vinna.
Þá er búist við að sinn helmingurinn verði af hverju:
karla og kvenna vinnu.
Listiðnaður.
(Þar á meðal hannyrðir) má ekki vera yfir |4
sýningarmunuim sýslnanna til jafnaðar.
Nýjungar.
Ef um einhverjar nýjungar í heimilisiðnaði er að
ræða, þá er það að sjálfsögðu fróðlegt og gagnlegt að
það sje til sýnis, en reynt verður það að vera áður að
gæðum.
Samvinna innan sýslu.
Það er í ráði, að hver sýsla hafi sjerdeild á landssýn-
ingunni. Nefndirnar í sýslunum eða fonnenn þeirra,
'þurfa því að hafa fundi með sjer a. m. k. árlega, til að
koma sjer saman um ýms atriði viðvíkjandi sýning-
unni. — Skeð getur t. d., að hrepparnir í sýslunni vildu
taka að nokkru leyti sitt hver til sýningar. Gerum t. d.
ráð fyrir, að í einum hreppi væri sjerstaklega margt af
lagtækum karlmönnum á trje, járn o. fl., en fátt af góð-
um tókonum eða vefurum. — þá ætti að vera
lögð áhersla á að safna þessu fyrir sýsluheildina. —
Ef samvinna er góð með nefndunum í hreppum sýsl-
unnar,'getur sýningin í heild orðið fullkomin, þótt vönt-
un sje á einum stað. önnur sveitin bætir það upp sem
hina vantar. — Nefndirnar verða beinlínis að gera sjer
Ijóst, hvað þær viija láta sýna úr sinni sýslu og ráða því
algerlega. Ef eitthvað sjerkennir sýsluna, er mjög mik-