Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 9
Hlín
7
afla sjer aukatekna: Úr sýslusjóðum, frá Búnaðarsam-
böndum o. s. frv. — Langefnaðast er Samband sunn-
lenskra kvenna. Herdís Jakobsdóttir (adr. nú Skúlagötu
58, Reykjavík), sem var formaður í 20 ár, eða frá stofnun
Sambandsins og þar til nú fyrir 2—3 árum, var fjármála-
maður góður.
Samband vestfirskra kvenna stofnað 1930. Formaður
síðustu 10 árin Sigríður Guðmundsdóttir, Hlíðarvegi,
ísafirði. (Fjelagsdeildirnar eru 14. Meðlimir 760). Fundir
eru til skiftis í deildunum. — Húsmæðraskólinn á ísafirði
er óskabarn Sambandsins. Kvenfjelagið „Ósk“ á ísafirði
stofnað 1907, eflaust elsta kvenfjelag á Vestfjörðum,
stofnaði skólann 1912. Skólinn hefur nú fyrir þrem árum
fengið ágæt húsakynni og ber nafn stofnanda. Á 40 ára af-
mæli ,,Óskar“ afhenti fjelagið skólanum 20 þúsund króna
gjöf, og nýlega gaf það skólanum vandaða slaghörpu.
Samband borgfirskra kvenna (Borgarfjarðar- og Mýra-
sýsla). Stofnað 1931. (Fjelagsdeildir 14. Meðlimir 454).
Formaður Þórunn Vigfúsdóttir, Skálpastöðum í Lundar-
reykjadal. Formaður fyrstu árin Svafa Þorleifsdóttir, þá
skólastjóri á Akranesi (adr. nú Hjallavegi 14, Reykjavík).
— Sambandið hefur af miklum dugnaði unnið að stofnun
Húsmæðraskólans á Varmalandi.
Samband breiðfirskra kvenna (tekur yfir hjeröðin
kringum Breiðafjörð). Stofnað 1932. (Fjelagsdeildir 22.
Meðlimir rúmlega 500). Formaður Theódóra Guðlaugs-
dóttir, Hóli í Hvammssveit í Dalasýslu. Formaður fyrstu
17 árin var Ingveldur Sigmundsdóttir (nú Miðtúni 12,
Reykjavík), þá skólastjóri á Sandi. Þetta Samband hefur
öðrum fremur haft vísur og kvæði á takteinum, hefur tek-
ið upp fjelagsmerki og fleiri nýbreytni. Sambandsfund-
urinn 1950, var haldinn á vegum tveggja kvenfjelaga í
Dalasýslu: Skarðsstrandar- og Klofningshr., stóð í 4 daga.
Kvennabandið, Vestur-Húnavatnssýslu. (Stofnað 1918).
Fjelagsdeildir 5. Meðlimir 127. — Formaður Jósefína
Helgadóttir, Reykjum í Miðfirði frá 1950. Formaður frá