Hlín - 01.01.1967, Blaðsíða 77
Hlin
75
Vinur minn, jeg vil bera fram þá ósk þjer til handa,
að þú megir eignast fullvissuna um það, að þjer ber að
vera glaður, vegna þeirrar hamingju og þeirra auðæfa,
sem þjer eru fyrirhuguð. — Pessi hnoss verða gefin þjer,
ef þú vilt veita þeim viðtöku. — Það er litli neistinn, sem
Guð faðir þinn hefur fengið þjer til varðveislu, sem er
fær um að verða lykillinn að lífshamingju þinni.
Vertu viss um, að þú hefur verið sendur í vissum til-
gangi inn í þessa veröld. — Þjer mun ætlað, í heimili þínu,
eða meðal þjóðar þinnar, eitthvert þýðingarmikið hlut-
verk, þessvegna verður þú að hætta við að binda huga
þinn að staðaldri fánýtum viðfangsefnum. — Settu þjer
hærra markmið, en að elta sápukúlur, þótt hafi fagra
liti. — Þær hverfa burtu úr höndum þínum og verða að
engu, líkt og loforð um gullna ávexti frá leikjum van-
þroskans. — Láttu ekki háværar raddir skemtanalífsins,
eða þvarg dægurþrasins eignast varanlegan sess í sálu
þinni. — Raddir frá ýmiskonar hávaða geta spilt rósemi,
sem þjer er nauðsynleg, gert hugsun þína grunna og
óstaðfasta og raskað rjettu mati þínu á þeim kröfum, sem
þú þarft að gera til þín sjálfs á sviðum sæmdar og dreng-
skapar.
Vinur minn, reyndu að láta dag hvern gefa þjer góða
næðisstund, leitaðu þá einveru og þagnar. — Það eru
raddir í þögninni, sem vilja tala við þig, raddir, sem eru
vinir þínir, vilja hjálpa þjer til þess að finna sjálfan þig
og skynja fegurð himins og jarðar.
Mundu: — Þú getur ekki heyrt eða numið hollræði
þagnarinnar, nema þú andir burtu frá huga þínum allri
gremju og kvíða. — Mundu: — Besti vinur þinn, sem er
öllum æðri, vill tala við þig á vegum þagnarinnar, og að
honum ber þjer að mæta með viðeigandi hugarfari.
Hann vill gefa þjer þá gleði, sem þú leitar að, og þann
þrótt, sem þú þarft að eignast, svo þú getir með sæmd og
drengskap leyst það hlutverk af hendi, sem þjer er ætlað,
sem ef til vill bíður þín í næsta skrefi.