Melkorka - 01.05.1944, Qupperneq 35

Melkorka - 01.05.1944, Qupperneq 35
RauSa torgið í Moskvu ismanum í hendur með Munchensamningunum alræmdu eitt sterkasta vígi frelsisins í Evrópu. Eftir þessar aðfarir bæði við Spán og Tjekkó- slóvakíu sáu Sovétríkin vel, hvert stefndi: allar bandalagstilraunir við lýðræðisríkin voru árang- urslausar og stríðið við fasismann yrðu þau að heyja ein. Jafnframt því sem Sovétríkin bera enga sök á þessari styrjöld, eru þau eina þjóðin, sem sáu opnum augum, að verjast þurfti hættu fasismans. Samtímis því sem England og Bandaríkin her- væddu Þýzkaland, Ítalíu og Japan, lögðu Sovét- ríkin sem harðast að sér að vígbúast og skapa sér her, er staðizt gæti móti ofbeldisríkjunum. í nær- felt 25 ár höfðu þau fengið að vera í friði við uppbyggingarstarf sitt og tekizt að reisa landið úr rústum eftir byltinguna 1917 og styrjöldina fyrir og eftir. Hið unga verkalýðsríki lagði allan sinn eldmóð og alla sína krafta til að reisa nýtt skipu- lag sósíalismans og það sá fyrstu drauma sína rætast með hinum voldugu framkvæmdum fimm- áraáætlananna, en jafnframt varð það að halda um sverðið annarri hendi í fullri vitund þess, að það yrði ekki aðeins að verja líf hins nýja þjóð- félags, heldur heyja frelsisbaráttu fyrir allt mann- kyn. En því glæsilegri sem árangur sósíalismans varð, því nær komu þórdunur hinnar komandi styrjaldar, sem sat um að tortíma honum. Spurn- ingin var: hve langan tíma fékk verkalýðsríkið enn að vera í friði, fimrn ár, tíu ár? Ef svo yrði, mundi það verða óvinnandi, þó allur heimurinn réðist á það. Nazistarnir sáu þetta líka. Styrjöldin mátti því ekki dragast, og 22. júní 1941 gerði Hitler fyrir- varalausa innrás, og þjóðir sósíalismans, sem voru að skapa 'nýtt ríki samstarfs og menningar, urðu nú að verjast mesta tortímingarher sög- unnar. Og hvað hafa svo Sovétþjóðirnar orðið að sjá á þessum þremur árum? Samyrkjubú Ukraínu, námur Dónetsdalsins, mannvirki Dnjepróstroj, nýjar borgir eins og Rostov og Stalíngrad, allt MELKORKA 31

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.