Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 95
SKYRSLUR STARFSMANNA
við Iiagstæð skilyrði hvað viðkemur birtu. En þrátt fyrir
það, var heildaruppskera sumra gróðurliúsaafurða, eins
og t. d. tómata og gúrkna, töluvert minni en árið áður.
Að nokkru var ástæðan sú, að ræktunarflötur þessara
plantna var minni en árið áður, en einnig var uppskeru-
magnið greinilega minna Ii já sumum garðyrkjubændum.
Nær allt sumarið var eftirspurn á framleiðslunni meiri
en framboðið, og munu brúttótekjur flestra gróðrarstöðva
bafa orðið með betra móti. Hins vegar liefur bæði stofn-
kostnaður og tilkostnaður við gróðurbúsarekstur liækkað
mjög mikið bin seinni ár, og þarf því árlegur afrakstur
af flatareiningunni að vera mikill, ekki hvað sízt vegna
þess að framleiðslutæki eins og gróðurhús er erfitt að
nýta liér til fullnustu allt árið um kring. Þetta gildir
a. m. k. þar sem grænmeti á í hlut.
Framleiðsla blóma jókst nokkuð, einkum afskorinna
blóma, þar eð stöku grænmetisframleiðendur snéru sér
að nokkru að þessari grein. Sala mun bafa gengið nokkuð
vel, enda er það sannreynt, að með vaxandi velmegun
eykst notkun blóma. Blómamarkaður liér er þó mjög
takmarkaður og yfirfyllist alltaf um básumarið, en slíkt
er erfitt að fyrirbyggja. Byggingaframkvæmdir á sviði
gróðurbúsa voru með minna móti, eða um 1400m2. 1
þessu er innifalið stórt gróðurbús byggt innan bæjar-
marka Reykjavíkur, sem öllu fremur er lnigsað sem sölu-
og sýningaskáli en til ræktunar.
Gróðurhúsabændur, einkum þeir, sem fást við ræktun
grænmetis og ávaxta, eiga bér við margvíslega erfiðleika
að etja. Má þar nefna, að þeir búa við lélegri lánaskil-
yrði en víðast livar þekkist annárs staðar, en það tor-
veldar mjög allar framkvæmdir þeirra svo og möguleika
til þess að gera hlutina vel úr garði, bagræða og tækni-
væða rekstur sinn. Auk þess eru hér tollar á flestum
nauðsynlegum innfluttum vörum varðandi rekstur gróð-
urbúsa svo svimandi báir, að annaö eins )>ekkist hvergi.
Gefið er, að bér þarf því umfangsmiklar breytingar á