Búnaðarrit - 01.01.1969, Síða 34
24
BÚNAÐARRIT
ið í bútæknideild Landbúnaðarháskólans að Ási í
Noregi og brautskráðist þaðan sem búfræðikandidat
í ágúst 1968.
Búnaðarfélag Islands væntir mikils af starfi Magn-
úsar og býður hann velkominn til starfa.
16. Gísli Kristjánsson er annar ritstjóri og ábyrgðarmað-
ur Freys, en útgáfunefnd skipa Einar Ólafsson, bóndi,
Lækjarlivammi, Pálmi Einarsson, fyrrverandi land-
námsstjóri, og Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri.
Gísli hefur auk þess umsjón með forðagæzlu og fóð-
urbirgðafélögum.
17. Ketill A. Hannesson, búnaðarhagfræðiráðunautur.
Hann annast einnig forstöðu Búreikningastofu land-
búnaðarins, sem er starfrækt samkvæmt lögum frá
11. apríl 1967. Búreikningastofan er ríkisstofnun und-
ir umsjón Búnaðarfélags Islands.
18. örn Ólafsson, fulltrúi á Búreikningastofu landbún-
aðarins.
19. GuSrún Gunnarsdóttir, fulltrúi á Búreikningastofu
landbúnaðarins.
20. Sveinn Einarsson, veiðistjóri. Ilann starfar samkvæmt
sérstökum lögum, og nýtur starfsemin beinnar fjár-
veitingar frá Alþingi, en Búnaðarfélagið annast stjórn
liennar.
21. Ingólfur Þorsteinsson, fulltrúi á ráðningarstofu land-
búnaðarins.
22. Ilannes Pálsson, fulltrúi, vinnur að útreikningi jarð-
ræktarframlaga og færir spjaldskrá yfir stærð túna.
23. Berglind Bragadóttir, einkaritari búnaðarmálastjóra.
Hún annast einnig bókasölu og skjalavörzlu félagsins.
24. Brynhildur Ingjaldsdóttir, ritari á aðalskrifstofu.
25. Olga Magnúsdóttir annast símavörzlu og vélritun.
26. Ásta Jóhannsdóttir, tölvuritari fyrir Búreikningastof-
una og sauðfjárræktina.
27. Þorbjörg Á. Oddgeirsdóttir, tölvuritari fyrir Búreikn-
ingastofima og sauðfjárræktina frá 1. marz til ársloka.