Búnaðarrit - 01.01.1969, Side 146
136
BÚNAÐARRIT
Marz: Ferð nm Húnavatnssýslur.
Apríl: Ferð um Suður-Þingeyjarsýslu og í Ámessýslu.
Maí: Ferð um Ámessýslu til Mýrclals og um Borgar-
fjarðarhérað.
Júní: Ferð um Norðurland, í S.-Þingeyjarsýslu.
Ferð um Austur- og Vestur-Barðastrandarsýslu.
Júlí: Farið á afrétti Rangárvallasýslu milli Þjórsár og
Köldukvíslar, í Þóristungur, Veiðivötn og Hraunvötn.
Ágúst: Farið um afrétti á Fjallabaksleið syðri.
Október: Ferð um uppsveitir Borgarfjarðar og Ámes-
og Rangárvallasýslu.
Nóvember: Ferð um Hxinavatnssýslur, Skagafjörð og
Eyjafjörð.
Desember: Ferð um Ámessýslu.
Á þessum ferðum mínum hef ég samband við fjölda
manna, sem hafa á hendi framkvæmdir um eyðingu refa
og minka. Minkar bafa allvíða verið unnir í þessum ferða-
lögum, og einnig hef ég legið fyrir refum yfir vetrar-
mánuðina og á grenjum að vori. AUmörg dýr vom unn-
in á árinu, eins og t. d. á Búðarhálsi og við Köldukvísl
á Holtamannaafrétti, þar sem við unnum 2 greni, alls
14 dýr, þar af 4 fullorðin grendýr og 10 yrðlinga.
Hér verður ekki sagt nánar frá einstökum ferðum
mínum, en ég álít þær mjög mikilvægar fyrir starfsemina
á allan hátt. Að sjálfsögðu er ekki liægt fyrir einn mann
að komast yfir allt í þessum efnum eins og æskilegt væri,
og er því mikilvægt, að stjómir bæja og sveita, sem eiga
að framfylgja aðgerðum við dýravinnsluna, bregðist ekki
í þeim málum, lieldur reyni að glæða áliuga veiðimann-
anna og fylgjast með störfum þeirra. Góð samvinna
allra, sem að dýraeyðingunni vinna, er höfuðskilyrði fyrir
sem beztum árangri.
Auk þessara starfa, sem þegar er getið, vann ég að
undirbúningi og uppsetningu á Landlninaðarsýningunni
í Reykjavík á sl. sumri í hlunnindadeild ásamt því, sem
sýnt var í sambandi við mína starfsemi.