Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 149
SKÝRSLUR STARFSMANNA 139
við refi á þessu svæði, verður að leita á hin mörgu greni,
því er kostnaður þar mikill miðað við unnin dýr.
Ef bornar eru saman tölur unninna dýra 1966 og 1967,
eru þær mjög svipaðar, aðeins örfáum dýrum færra árið
1967. Það virðist ætla að ganga treglega að fækka ref-
um og minkum meira en orðið er. Fjöldi þeirra var
mun meiri fyrsta árið, sem skipulagðar leitir fóru fram.
Það, sem mestum erfiðleikum veldur í dýravinnslunni,
eru hin víðáttumiklu hraunsvæði landsins, þar eru skil-
yrði fyrir refi og minka liin ákjósanlegustu á allan hátt.
Þessi svæði er ógjörlegt að leita svo vel, að ekki geti
orðið eittlivað eftir. Eiturbannið hefur nú staðið í fimm
ár, og getur það verið nokkur ástæða fyrir því, að ekki
hefur gengið meira á refastofninn.
Á þeim svæðum, sem vetrarveiðar hafa verið stund-
aðar þetta tímabil, liefur refum fækkað, en aftur á móti
fjölgað heldur, þar sem vetrarveiðar liafa ekki verið
framkvæmdar. Það þarf því meira að koma til en grenja-
vinnslan ein, til að dýrum fjölgi ekki á ný.
í janúar 1969,
Sveinn Einarsson.
Starfsskýrsla Asgeirs L. Jónssonar
Mælingar
Alls mældi ég fyrir neyzluvatnsleiðslum á 36 býlum,
samtals 19364 m og leiðbeindi auk þess um vatnsleiðslur
á 24 býlum að mestu leyti án mælinga. Þá gerði ég áætl-
un um vatnsleiðslur á 3 býlum eftir annarra mælingum,
alls 1838 m. Á 1 ljýli mældi ég fyrir 156 m langri skolp-
leiðslu.