Búnaðarrit - 01.01.1969, Side 212
202
BÚNAÐARRIT
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 24 samhljóða atkvæðum:
1.
Búnaðarþing ályktar, að ríkissjóði beri skylda til að
greiða Áburðarsölu ríkisins að fullu það tjón, sem bún
varð fyrir vegna gengistaps í nóvember 1968 á erlendum
rekstrarlánum.
2.
Búnaðarþing beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráð-
berra að vinna að því við ríkisstjórn og Alþingi, að ríkis-
sjóður greiði niður alla verðliækkun, sem verða kann á
þessu ári á tilbúnum áburði.
Greinargerð:
Hér er í fyrsta lagi farið fram á það, að ríkissjóður
greiði Áburðarsölunni það gengisfellingartap, sem hún
varð fyrir vegna liins erlenda láns, sem liún neyddist til
að taka vegna áburðarkaupa fyrir vorið 1968 og ekki
féll í gjalddaga fyrr en eftir gengisfellinguna í nóv. sl.
1 öðru lagi er farið fram á það, að ríkissjóður greiði
áburðarverðið niður í vor, sem nemur verðhækkun
vegna gengisfellingarinnar.
Að dómi forsvarsmanna landbúnaðarins er nokkurn
veginn víst, að áburðarkaup bænda munu dragast saman
sem nemur verðhækkun áburðarins, ef ekkert verður að
gert, þar sem bændur óttast líka, að fenginni reynslu, að
bækkunin muni ekki fást tekin að fullu inn í verðlagið.
Eu jafnvel þótt |>að fengist, blýtur ]>að að bjóða lieim
stóraukinni dýrtíð, sem allir, og þá ekki sízt stjórnar-
völdin, eru sammála um, að sé mjög ólieppileg þróun.
Hins vegar geta bændur ekki axlað J>á byrði að taka á
sig stórfellda liækkun á annarri stærstu rekstrarvöru
þeirra, nema að fá fulla umbun þess í verðlagningunni.
En ]>að má fullyrða, að þann kostinn telja bændur