Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 28
22
BÚNAÐAURIT
Sveinn var varafundarstjóri. Þátt í ráðstefnunni tóku hér-
aðsráðunautar, ráðunautar Búnaðarfélags Islands, margir
af sérfræðingum Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins,
nokkrir af kennurum bændaskólanna, sérfræðingar frá
Landnámi ríkisins, Byggingarstofnun landbúnaðarins,
Landgræðslu ríkisins og Rannsóknarstofu Norðurlands
og fleiri.
1 starfsskýrslu Ketils A. Hannessonar er skýrt frá þeirn
viðfangsefnum, sem tekin voru fyrir á ráðstefnunni með
erindum og umræðum. Fór ráðstefnan ágætlega fram, og
þakkar Búnaðarfélag Islands öllum þeim, sem stuðluðu
að því að gera liana árangursríka og ánægjulega.
NámskeiS um meðferfí djúpfrysts nautasœðis og sœð-
irtgar liélt Búnaðarfélag Íslands 5.—24. nóvember fyrir
nokkra unga menn, sem hef ja ætla störf á dreifingarstöðv-
um, sem nota djúpfryst sæði. Jóliannes Eiríksson undir-
bjó námskeið þetta með aðstoð Páls A. Pálssonar, yfir-
dýralæknis, Diðriks Jóhannssonar, framkvæmdarstjóra, og
Sigurðar Sigurðarsonar, dýralæknis. Jóbannes Eiríksson
veitti námskeiðinu forystu, unz liann féll frá liinn 12.
nóvember. Eftir það tók Diðrik Jóliannsson við stjórn
námskeiðsins, og vísast til starfsskýrslu hans um þátttak-
endafjölda, kennslufyrirkomulag og hverjir önnuðust
kennslu á námskeiði þessu.
Námskeið fyrir bœndur. Á árinu 1972 lióf Búnaðarfélag
íslands nýjan þátt búnaðarfræðslu með því að koma á
námskeiðum fyrir nokkra bændur eða bændaefni í sam-
vinnu við Búnaðarsamband Austurlands, er stæðu í nokkra
daga samfleytt. Er þar breytt til frá liinum eldri nám-
skeiðum, sem voru í umræðufundarformi og stóðu sjaldan
lengur en tvo daga og á síðustu áratugum jafnan aðeins
dagsstund. Á árinu 1972 var lialdið eitt námskeið með binu
nýja fyrirkomulagi að Skriðuklaustri, búvélanámskeið.
Á árinu 1973 voru lialdin 3 námskeið, öll á Austurlandi, í
sambandi við sauðfjárrækt. 1 byrjun apríl voru haldin
tvö námskeið í vélrúningu sauðfjár, annað á Jökuldal, en