Búnaðarrit - 01.01.1974, Blaðsíða 225
LANDBÚNAÐURINN
219
ans gefa góða bendingu um byggingarframkvæmdir í
sveitum, vélvæðingu landbúnaðarins og jarðakaup. Á
árinu 1973 voru veitt 1157 A-lán úr Stofnlánadeild sam-
tals að fjárhæð kr. 428.550.000,00, þar af til vinnslustöðva
16 lán, að fjárhæð kr. 24.506.000,00, til ræktunarsam-
banda og einstaklinga til þungavinnuvélakaupa 15 lán
að fjárhæð kr. 11.798.000,00, til dráttarvélakaupa 518
lán að f járhæð kr. 78.305.000,00, til lax- og silungsræktar
7 lán að fjárhæð kr. 13.587.000,00 og til útihúsabygginga,
ræktunar o. fl. 618 lán að fjárliæð kr. 300.354.000,00. X
krónutölu liafa A-lán liækkað um kr. 114.377.000,00 eða
um 36% frá árinu 1972. Einkum hefur fjölgað lánum
til dráttarvélakaupa. B-Ián til íhúðarhúsabygginga í
sveitum voru 205 að fjárhæð kr. 73.971.000,00. Er það
4 lánum fleira en 1972, en lánsfjárliæöin hækkaði um
33,5%.
Þá var á árinu 1973 byrjað á nýjum lánaflokki, Bú-
stofnslánum. Aðeins voru afgreidd 2 lán að fjárliæð kr.
540.000,00, en mörg lán í þessum flokki eru í undir-
húningi og verða lánaðar um 25 milljónir króna í bú-
stofnslán snemma á þessu nýbyrjaða ári.
Úr Véðdeild Búnaðarbankans voru veitt 146 lán til
jarðakaupa, að fjárliæð kr. 49.225.000,00, sem er því nær
sama fjárupphæð og lánuð var til jarðakaupa 1972, en
þá voru slík lán 35 fleiri, en lægri. Þetta bendir til
fremur lítillar eignahreyfingar á jörðum milli bænda á
árinu 1973, aðeins um 3% byggðra býla liafa skipt um
eigendur á því ári.
Þá voru veitt 10 lán úr Veðdeildinni áð fjárliæð kr.
4.020.000,00 til að breyta lausaskuldum illa stæðra bænda
í föst lán. Lánastarfsemi Stofnlánadeildar og Veðdeildar
á árinu 1973 bendir til þess, að framkvæmdir bænda
hafi verið svipaðar að magni og árið áður, þar eð lán-
veitingarnar liafa ekki liækkað nema ríflega sem nemur
aukinni dýrtíð.
Véla og verkfærakaup. Árið 1973 voru fluttar inn 530