Búnaðarrit - 01.01.1947, Blaðsíða 31
BÚNAÐARRIT
25
tilefni af því átti stjórn Búnaðarfélags Islands samtal
við ráðherra, um afurðaverð landbúnaðarins og fyrir-
ætlanir ríkisstjórnarinnar þar að lútandi. Samtal þetta
fór fr am 30. júlí. Að viðræðum þessum loknum skrif-
aði Búnaðarfélagsstjórnin landbúnaðarráðherra svo
hljóðandi bréf:
„Með skirskotun til samtals þess, sem stjórn Bún-
aðarfélags íslands átti við yður, hæstvirtur landbún-
aðarráðherra, í dag, um tilhögun á afurðasölumálum
landbúnaðarins og upplýsinga þeirra, sem þér gáfuð
iiin fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar í því efni, viljum
vér hér með leyfa oss að óska þess, að þér sæjuð vður
fært að fresta ákvörðun um þetta efni þangað til Bún-
aðarþing kemur saman 7. ágúst næstkomandi.
Viljum vér í þessu sambandi benda á, að Alþingi
gerði stjórn Búnaðarfélagsins á sínum tima, þegar á-
kvörðun var tekin um niðurgreiðslur á verði land-
búnaðarafurða, að aðila í þeirri ráðslöfun, og virðist
°ss, að það væri ekki óeðlilegt í framhaldi af því,
að ríkisstjórnin hefði samráð við stjórn Búnaðarfé-
lagsins og Búnaðarþing um breytingar á þessari til-
högun, svo og öðrum ákvörðunum þar að lútandi."
Bréfi þessu svaraði landbúnaðarráðherra með svo
hljóðandi bréfi, dags. 2. ágúst:
„Landhúnaðarráðherra hefur lagt fyrir ráðuneytis-
fund bréf yðar frá 30. f. m„ þar sem þér farið fram
a, að frestað verði ákvörðun um tilhögun á verðlagn-
higu landbúnaðarafurða þangað til Búnaðarþing hef-
11 r fengið tækifæri til að fjalla um málið.
Hikisstjórnin samþykkti að verða við þessum til-
aiælum yðar, en leggur jafnframt á það hina mestu
uherzlu, að hraðað verði samningaumleitunum þeim,
að undanförnu hafa staðið yfir milli stjórnar
Bunaðarfélagsins og Alþýðusambands íslands, um
verð á landbúnaðarafurðum o. fl„ og að þeiin, ef
niogulegt er, yrði lokið fyrir miðjan þennan mánuð,