Búnaðarrit - 01.01.1947, Blaðsíða 67
B U N A. Ð A R R I T
61
Haustið (oklóber—nóvember).
Okt. byrjar með mikilli úrkomu fram að 8., en svo
þornaði til og varð ágæt þurrkatíð fram að 21. okt.,
en þá brá aftur vil votviðra, er licldust til loka mánað-
arins. Tíðin yfirleitt hagstæð, aldrei frost. Jörð græn
og góð lil beitar, enda kúm víða beitt allan mánuðinn.
Hiti yfir meðallag og úrkomumagnið einnig. Síðustu
3 daga mán. var allhvast á SA.
Nóvember sérstaklega hlýr fram að 11., en öll úr-
koma mánaðarins fcll frá 1.—15. nóv. Eftir 15. gerði
þurr veður með töluverðu frosti á auða jörð, sól var
oftast og bjartviðri. Útipening lítið gefið, því beitar-
veður var gott. Frá 8.—10. nóv. var öllum liöfrum
stöðvarinnar ekið í hlöðu, prýðisvel þurrum. Mán.
má teljast mjög hagstæður fénaðarhöldum og útiverk-
um.
Desember hlýrri að meðaltali en nóvb., en samt
vindasamara og verra tíðarfar. Úrlcoma yfir meðallag,
og féll nokkuð jafnt. Snjór féll fvrst 5. og 6. des. og
svo 21.—26. s. m.-en leysti brátt upp.
Mán. hagstæður miðað við árstíð. Síðasti dagur árs-
ins endaði með sól og bjartviðri. Viðast gefið sauð-
fé með beitinni, en hún var venju fremur góð. Úti-
gangshrossum ekkert gefið.
Árið 1946 má teljast með beztu og liagstæðustu ár-
um fyrir landhúnaðinn. Veturinn var mildur og eftir
hætti hlýr. Útipeningur naut vel beitar vegna góðrar
veðráttu. Vorið var fremur hlýtt, en lielzt til þurr-
viðrasamt. Sumarið þurrt og hlýtt, og öll spretta vel
í meðallagi. Nýting á öllu lieyi og öðrum jarðargróðri
varð með afbrigðum góð. Haustið milt og bagstætt fén-
aðarhöldum og útistörfum öllum. Fer hér á eftir yfir-
lit um hita, úrkomu, sólfar og veður ársins 1946: