Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 85
BÚNAÐARRIT
81
þéttholda, þykkvaxið og þolslegt yfirleitt, og hyrnda
íeð á Arngerðareyri er miklum kostum búið. Það er
að nokkru leyti út af gamla Gottorpsfénu og her mörg
einkenni þess, er vænt og afurðalegt.
Rögnvaldur í Ólafsdal fékk leyfi til þess að kaupa
lömb í kynbótabúið í Reykjarfjarðarhreppi eins og áð-
ur er sagt.
Sauðfjárræktarfélögin.
Eftirtalin 10 sauðfjárræktarfélög fengu styrk sam-
kvæmt búfjárræktarlögunum á árinu 1947 fyrir
starfsárið 1945—46:
1. Sauðfjárræktarfél. Andakílshrepps í Borgarfirði.
2. — Hnífill í Fljótshlíð, Rang.
3. — Borgarhafnarhrepps, A.-Slcapt.
4. — Mýrahrepps, A.-Skapt.
5. — Öræfa, A.-Skapt.
6. — Hafnarkauptúns, A.-Skapt.
7. — Nesjamanna, A.-Skapt.
8. — Gnúpverja, Árnessýslu.
9. — Þistill, N.-Þing.
10. — á Ingjaldssandi, N.-Is.
Þetta var í fyrsta skipti sem sauðfjárræktarfélögin
í Öræfum og G,núpverjahreppi hlutu styrk, því þau
voru stofnuð ári áður. Á árinu var samþykkt að
stofna fjárræktarfélag í Hrunamannahreppi. Hjalti
Gestsson, héraðsráðunautur og undirritaður, ferðuð-
umst milli stofnenda þess félags, til þess að aðstoða
við val á ám í félagið.
Hið ársgamla sauðfjárræktarfélag Svarfdæla lagð-
ist niður, án þess að senda frá sér skýrslu.
Árið 1948 fengu sömu fjárræktarfélög styrk og ár-
ið áður, og auk þess fjárræktarfélag Hrunamanna,
fyrir sitt fyrsta starfsár 1946—47.
Veturinn 1947—48 ákváðu nokkrir bændur í Bisk-
6