Búnaðarrit - 01.01.1950, Side 119
B Ú N A Ð A R R I T
115
áfreðar og snjókoma annað veifið mestan hluta mán-
aðarins. Gjaffellt fyrir beitarfénað og því oftast gefin
full gjöf. Snemma morguns 29. marz varð hér all-
snarpur jarðskjálftakippur og eldgos í Heklu. Varð
mikið ösku- og vikurfall í inn-Fljótshlíð, en aðallega
öskufall í mið- og út-Fljótshlíð. 1 innhliðinni varð
vikurfall svo mikið, að jörð var hulin með 10—15
cm þykku vikurlagi og náði þetta út fyrir Hlíðarenda-
kot, en svo dróg mjög úr vikurmagni, svo það var
1—2 cm þykkt frá Hlíðarenda og út í miðhlíð. Utar
var aðeins öskufall ca 1 cm þykkt, sem hvarf að mestu
niður í grassvörðinn þegar úrlcoma varð. Þegar gosið
byrjaði, var öll jörð frosin og snjór í lautum, en að
öðru leyti auð jörð.
Vorið (apríl—mai) var kalt í byrjun, en hlýrra
þegar á leið. Apríl var óvenjulega svalur, einkum
fram að 9. Eftir þann tima varð nokkur úrkoma,
sem stundum var snjór. Jörð varð fyrst plógþýð á
slétllendi 21. apríl, en vegna kulda varð ekki unnt
að sá korni. Öskufall var alltaf öðru hvoru, en aldrci
mikið. Vegna þessa snerti fénaður ekki við jörð svo
heitið gæti, varð þvi að gefa öllu inni, þvi jörð lifn-
aði ekkert vegna tíðarfarsins.
Maí var með hlýjasta móti, úrkoma jöfn og nokkuð
tíð. Gróður kom seint. Tún ekki fullgræn í’yrr en
uin 20., enda klaki í jörð fram yfir þann tíma. Korn-
sáning liófst 1. maí og var lokið 17. s. m. Beitarfénaði
var gefið fram að 23., vegna gróðurleysis, og svo það,
að aska var meiri og minni í allri jörð, svo fénaður-
inn lét verr við henni en ella. Kýr fyrst látnar út til
beitar um 28. — aldrei áður svona seint. Garðvinna
og niðursetning lcartaflna hófst almennt 20.—25., eða
i seinna lagi, eins og annað. Öskufall öðru hvoru.
Sumarið (júní—sept.). Eftirminnilegt fyrir sunn-
lenzka bændur vegna fram úr hófi óhagstæðrar veðr-
áttu. Sumarið var alveg í meðallagi hlýtt, en með þeim