Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 125
BÚNAÐARRIT
121
og magni fyrir neðan meðallag. Byrjað að slá bygg
7. september. Hafrar fullþroskaðir um 20. s. m. Korn-
uppskeru að mestu iokið um mánaðamótin. Almennt
byrjað að taka upp kartöflur 8. september og viðast
lokið í mánuðinum. Alls staðar góð og skemmdalítil
uppskera. Næturfrost urðu 19., 20. og 25. sept., en
gerðu ekki teljandi skaða. Mánuðurinn mjög hagstæð-
ur öllum síðsumarstörfum.
Haustið (október.—nóv.) hagstætt öllum beitarfén-
aði, en tíð nokkuð óstöðug og hlýindi yfir meðallag.
Olctóber rigningasamur fram að 14., en úr þvi tók
að frjósa á auða jörð og hélst svo fram að 27. s. m.
Um mánaðamót var lcominn allmikill klaki í jörð.
Vegna þess hve frostið kom snemma, tók fyrir alla
jarðvinnslu óvenjulega fljótt. Kýr voru víðast teknar
inn á gjöf um 12.—15. október. Fyrsti snjór féll 21.
s. m., sem aðeins var föl. Mánuðurinn óhagstæður
flestum útistörfum vegna rigninga og frosta.
Nóvembcr. Hlýindi og úrkoma yfir meðallag og
hvarf að mestu allur klaki úr jörð, þegar komið var
fram yfir miðjan mánuðinn. Fram að 8. var nokkuð
frost, en svo ])ýðviðri með fáum úrtökum. Nokkuð
veðrasamt, en aldrei hörð veður. Góð veðrátta fyrir
mörg útistörf og útipeningi var ekki gefið, því alltaf
var næg beit.
Desember svipar mjög til fyrri mánaðar með úr-
komusömu og hlýju veðri, og líkist meir haust- en
vetrarveðráttu. Nokkur snjókoma varð 4., 13. og 14.,
og spilltist þá færð á Hellisheiði. Jörð víðast klaka-
litil og oftast auð til lieitar, enda fé ekki tekið á gjöf
fyrr en undir jól. Hrossum ekki gefið.
Síðustu 3 daga ársins snjóaði dáiítið, og árið endaði
með mikilli snjókomu, er tók fyrir alla umferð á hif-
reiðum í Rangárvallasýslu.
Árið 1948 má telja með þeim beztu, er komið hafa
síðan 1939.