Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 141
B Ú N A Ð A II R I T
137
Sáð 11. mai sigurkorni ............................... 0.30 ha
Sáð 11. mai liöfrum (Sv. Someli.) .................... 0.39 —
Samtals 4.27 lia
Kartöflur ........................................... 0.40 —
Samtals 4.G7 lia
Bæði byggið og hafrarnir náðu góðum þroslca um
miðjan september og nýttust vel.
Kartöflurnar spruttu vel, það sem var íslenzkt út~
sæði, en erlenda útsæðið, „Erlingur“ og „Bindje“,
gáfu 2—3-falda uppskeru, en með þessum afbrigðum
báðum var mestur hluti af landinu.
Grasfræið kom allt vel upp og leit vel út í haust.
Vorið 1941 var sáð í þessa sandræktargirðingu fóð-
urfoxi frá Norðurlöndum, og hefur þessi tegund lifað
vel í sandinum og borið af öðru grasi. Virðist það þola
vel sandsvarfið, sem þarna verður oft, þegar vind
lireifir. Tegund þessi bindur vel sandinn, er með sterku
og þroskuðu rótarkerfi, og yfirvöxtur getur orðið
mikill, ef eklci skortir áburð.
Vorið 1945 var sáð sömu tegund og 1941, en nú
annað afbrigði af fóðurfoxi, er Páll Sveinsson frá
Fossi í Mýrdal sendi mér ásamt öðrum frætegundum
frá Ameríku — en hann var þá þar við nám í sand-
græðslu —. Þetta fóðurfoxafbrigði er mun blaðbreið-
ara og þroskavænlegra en það, sem reynt hefur verið
frá Norðurlöndum.
Það fóðurfox, sem sáð var s. 1. vor í sandræktar-
stöðina (þ. e. 1 ha), var frá Ameríku og útvegað af
Sandgræðslu ríkisins, og er sennilega sama afbrigðið
og Páll sendi mér 1945. Ég held að það megi tengja
töluverðar vonir við þessa tegund fyrir sandrælctun
og sandgræðslu í framtíðinni.
Að öðru leyti en hér hefur verið greint, hafa störf
mín verið eins og venjulega, að veita þessu fyrirtæki
forstöðu, gefa leiðbeiningar í jarðrækt, flytja erindi