Búnaðarrit - 01.01.1950, Page 148
144
B Ú N A Ð A R R I T
samband við Meðallandið verður að teljast í lakara
lagi og vegir um sveitina lélegir.
Með tilliti til jiess, sem nú hefur verið sagt, verður
ekki hjá því komizt að luigsa um, hvort rétt sé, að
leggja meiri fjármuni, en j>egar hefur verið gert, til
að halda við byggð í Meðallandi. Það er víst, að með
núverandi verðlagi verður stofnkostnaður sandgræðsl-
unnar sunnan Meðallandsins 150—200 jnisund lcrónur.
Iíostnaður við að hafa vald á vatni j>ví, sem liggur
og sækir á Meðallandið, skal ekki áætlaður hér, en
með tilliti til landþurrkunar og ræktunar myndi fram-
ræsla j>ar, sem að gagni væri, eflaust kosta offjár.
Vegalagningar að Meðallandi og um j>að verða ekki
síður dýrar j>ar en annars staðar. Hér er að ræða um
12—14 búendur, sem reka flestir fremur smá bú.
Ef það dæmi er gert upp í krónum og aurum, hvort
j>að borgi sig að leggja stórfé í framlcvæmdir til bjarg-
ar Meðallandinu, verður útkoman eflaust neikvæð.
En slíkt dæmi verður ekki eingöngu gert upp í krón-
um og aurum. Þar kemur fleira til greina, sem ekki
verður metið í fjármunum einum saman.
Fyrst er þess að geta, að j>egar hefur verið lagt all-
mikið fé í sandgræðsluna norðan Meðallandsins. Vötn
hafa verið brúuð og vegir ruddir vegna j>essarar
byggðar. Lítilsháttar ræktun hefur verið gerð þar, og
ekki sízt er bundið fjármagn í byggingum býlanna
allra. Að vísu er j>ar fátt um vönduð steinhús,
en engu að siður eru miklir fjármunir fólgnir í hús-
um allra bæjanna.
Þegar álcvörðun verður tekin um j>að, hvort leggja
á le í að bjarga Meðallandinu frá ejrðingu, má heldur
ekki gleyma eftirfarandi atriðum:
Undanfarna áratugi hafa mörg skip strandað við
Meðallandsfjörur. Þar hefur mörgum mannslífuiu
verið bjargað frá jijáningum og dauða, vegna þess,
að byggð var í Meðallandi. Þótt öryggi skipa og sjó-