Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 37

Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 37
Kristján Jóhannsson Það er of langt mál að telja upp öll afrek Kristjáns í óperu- og tónlistarhúsum um víða veröld, sigrar hans og viðtökur gagnrýnenda hafa yfirleitt verið á eina lund, hvort heldur sem er í Metropolitan óperunni, á Scala í Covent Garden eða í Carnegie Hall. Hann kom fyrst fram á óperusviði árið 1980 í Il Tabarro eftir Puccini við Osimo Teatro Piccola óperuhúsið í Feneyjum. Síðan þá hefur hann stigið á helstu óperusvið heims og sungið þekktustu óperu- hlutverk tónlistarsögunnar. Fróðleiksmolar · Kristján hóf tónlistarnám 8 ára gamall en þó ekki söngnám fyrr en um tvítugt. · Gælunafn: Kris. Haukur Heiðar Hauksson Haukur er aðallagahöfundur og söngvari hljómsveitarinnar Diktu, sem er ein af vinsælustu rokkhljómsveitum landsins og hefur gefið út þrjár plötur á ferlinum. Haukur var ekki nema 4-5 ára gamall þegar hann lýsti því yfir að hann ætlaði að verða „læknir og spilamaður” eins og pabbi. Það er ekki oft sem svo snemmborin fyrirheit rætast en Haukur Heiðar Hauksson stóð við sitt; hann útskrifaðist úr læknadeild HÍ vorið 2008. Fróðleiksmolar · Gælunafn: Hauxi Hauxxx · Haukur starfaði eitt sinn á lager í Samkaupum í Hafnarfirði. · Faðir Hauks Heiðars er Haukur Heiðar Ingólfsson, heimilis- læknir og píanóleikari, kannski þekktastur fyrir að spila um áratugaskeið með Ómari Ragnarssyni á skemmtunum um land allt og á fjölda hljómplatna. Eftirlaetis tilvitnun: „Time is fun when you’re having flies“ – Groucho Marx. Ragnhildur Gísladóttir Ragnhildur hefur verið í tónlistarbransanum í rúm 30 ár og komið víða við. Ragnhildur hefur gert það gott hér á landi í tónlist og leiklist, gefið út fjölmargar plötur, bæði í samstarfi við Stuðmenn og Human Body Orchestra, sem og sólóplöturnar Ragga & The Jack Magic Orchestra, Rombigy og Baby. Hún hefur samið tónlist fyrir leikverk og lauk prófi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands árið 2008. Fyrr á árinu samdi Ragnhildur tvö dansverk, Bræður sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð í maí og Eins og vatnið á Reykjavík Dance Festival. Fróðleiksmolar · Fullt nafn: Guðmunda Ragnhildur Gísladóttir. · Gælunöfn: Rax eða Mama-raga. · Ragnhildur starfaði eitt sinn sem 2. aðstoðartökumaður eða „clapper/loader“ við kvikmyndagerð. Eftirlaetis tilvitnun: „Af hverju fær þetta fólk sér ekki bara almennilega vinnu?“ - Ásbjörn Óttarsson, alþingismaður. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Jóhanna hljóðritaði sína fyrstu sólóplötu aðeins níu ára gömul. Platan kom út á tíu ára afmæli hennar árið 2000 og hlaut miklar vinsældir. Á unglingsárum sínum starfaði Jóhanna með erlendum upptökustjórum og söng- þjálfurum, einn þeirra er upptökustjórinn Thomas Yezzi sem sagði um Jóhönnu að hún væri „Hvít, íslensk unglings- stúlka með sál fimmtugrar blökkukonu.” Jóhanna er eins og alþjóð veit ábyrg fyrir 2. sæti Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2009. Fróðleiksmolar · Gælunafn: Jobba. · Jóhanna starfaði eitt sinn sem hestasveinn. Eftirlaetis tilvitnun: „Það sem ekki drepur þig, gerir þig sterkari.“ Gissur Páll Gissurarson Gissur hóf nám sitt í Söngskólanum í Reykjavík veturinn 1997 undir handleiðslu Magnúsar Jónssonar. Árið 2001 hóf Gissur nám við Conservatorio G.B. Martini í Bologna á Ítalíu. Sumarið 2003 steig hann sín fyrstu skref á ítölsku óperusviði sem Ruiz í óperunni Il Trovatore. Síðan þá hefur hann sungið í fjölmörgum óperum víðs vegar um heiminn. Haustið 2009 söng Gissur hlutverk Nemorio í uppsetningu Íslensku óperunnar á Ástardrykknum. Fróðleiksmolar · Gissur starfaði eitt sinn við hellulögn. Eftirlaetis tilvitnun: „Ég geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn.“ –Úr kvikmyndinni Sódóma Reykjavík. Viðburðurinn Jólagestir Björgvins eru nú haldnir í fjórða sinn og er gestalistinn glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Erlendar stjórstjörnur koma fram og við förum til Akureyrar í fyrsa skipti. Markmiðið er einfalt; að setja ný viðmið í tónleikahaldi á Íslandi. Það er ekki að ástæðulausu sem tónlistin er gjarnan kölluð æðsta listformið, hún hefur fylgt manninum frá örófi alda og ekkert listform á eins greiðan aðgang að sálinni. Með glæsilegum aðbúnaði og færustu flytjendum landsins, og þótt víðar væri leitað, er ætlunin að bjóða uppá ógleymanlega upplifun sem vermir hjörtu og sálir þeirra sem koma og njóta tónleikanna. forsala hefst kl. 10:00 í dag, nánar á baksíðu. Ásamt þessum ótrúlega glaesilega hópi söngvara kemur fram landslið hljóðfaeraleikara undir stjórn Þóris Baldurssonar, Karlakórinn Þrestir undir stjórn Jóns Kristins Cortes, Gospelkór Óskars Einarssonar og Barnakór Kársnesskóla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.