Fréttablaðið - 15.10.2010, Síða 60

Fréttablaðið - 15.10.2010, Síða 60
32 15. október 2010 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is Bloodgroup ★★★★ Nasa Stuð frá byrjun til enda Bloodgroup er ekki aðeins ein besta hljómsveit landsins um þessar mundir, hún er einnig ein sú svalasta. Hljómsveitin greip áhorfendur á Nasa á miðvikudagskvöld og sleppti ekki takinu fyrr en búið var að taka síðasta hljómborðið úr sambandi. Nýja söngkonan Sunna Margrét og hinn færeyski Janus mynda magnað teymi í forgrunni og bræðurnir Hallur og Ragnar steypa þéttan grunn undir allt. Þá var strengjasveitin sem fylgdi Bloodgroup á svið frábær. Tónleikar Bloodgroup voru stuð frá byrjun til enda, flutningurinn var frábær og áhorfendur vildu skiljanlega meira. - afb Buxnaskjónar ★★ Amsterdam Taugaspenna Það kom í hlut Buxnaskjóna frá Akur- eyri að hefja leik á Amsterdam á mið- vikudagskvöld. Tríóið leikur hressilegt pönk og textarnir eru á Íslensku. Tónleikarnir fóru hægt á stað, enda staðurinn hálftómur og hljómburður ekki eins og best verður á kosið. Hljómsveitinni óx þó ásmegin þegar leið á og spilaði fjölmörg örstutt lög sem voru búin áður en þau byrjuðu. Það var augljóst að meðlimir hljómsveitarinnar voru taugaóstyrkir og mætingin spilaði vafalaust þar inn í. Þeir eiga þó nóg inni og mæta vafalaust brjálaðir til leiks að ári. - afb Benny Crespo´s Gang ★★★ Nasa Rokkkeyrsla í tímaþröng Vegna tækniörðugleika steig Benny Crespo´s Gang á svið um tíu mín- útum á eftir áætlun. Til að halda tímaáætlun fékk sveitin aðeins að taka fjögur lög en upphaflega voru sjö lög á efnisskránni. Frammistaða sveitarinnar var góð en líklega hefði hún þurft meiri tíma til að komast á flug. Rokkkeyrslan var þétt enda með- limir Benny Crespo´s Gang fyrirtaks hljóðfæraleikarar. Eingöngu ný lög af væntanlegri plötu voru á dagskrá og hljómuðu þau tvö fyrstu best. Minntu þau stundum á Muse, nema rokkaðri og ekki alveg eins grípandi. - fb Agent Fresco ★★★★ Nasa Fullfrískir og kraftmiklir Fregnir af hálsbólgu söngvarans Arn- órs Dan virtust stórlega ýktar þegar hann birtist á sviðinu með undarlegt höfuðfat sem minnti einna helst á Pretador-skrímslið. Röddin virtist í fínu lagi og var hann hvergi banginn við að láta reyna á hana. Lét hann sér ekki muna um hvert dauðarokksöskr- ið á fætur öðru, hoppandi og skopp- andi um sviðið. Agent Fresco skartaði nýjum bassaleikara á tónleikunum og féll hann einkar vel inn í hópinn. Sveitin spilaði að mestu gömul lög en það næstsíðasta var glænýtt af vænt- anlegri plötu. Frábært lag sem lofar virkilega góðu um framhaldið. - fb AIRWAVES BYRJAR MEÐ Þrátt fyrir fámenni á Amsterdam við upphaf Airwaves-hátíðarinnar voru mætir menn mættir á svæðið. Trommuleikarinn Þorvaldur Gröndal, sem er þekktastur fyrir að lemja rafhúðir í hljómsveitinni Trabant, fylgdist með hljómsveit- inni Buxnaskjónar rétt eins og Rögnvaldur gáfaði, fyrrverandi Hvanndalsbróðir. Á Sódómu skömmu síðar skaust formaður borgarráðs Dagur B. Eggertsson upp stigann eftir stutt samtal við útvarpsmanninn Mána Pétursson af Xinu. Morgunhaninn Ómar Eyþórsson, samstarfsfélagi Mána, var einnig á svæðinu og Mugison steig á svið með Pétri. Á Nasa var uppistandarinn Alma Geirdal mætt og fylgdist með hljómsveitinni Sykri. Óli Palli af Rás 2 var þar einnig rétt eins og yfirplöggarinn Jón Gunnar Geirdal og Ásgeir Kolbeins. - afb FÓLK Á AIRWAVES HÓFU LEIK Buxnaskjónar frá Akureyri spiluðu pönkið sitt á Amsterdam. > AFTUR Á LOFT Miklar sögur ganga nú um Holly- wood þess efnis að gerð verði fram- haldsmynd Top Gun frá 1986. Öruggt er talið að Tom Cruise muni leika aðalhlutverkið en framleið- andi er enginn annar en Jerry Bruckheimer. Þessar hug- myndir hafa fengið byr undir báða vængi eftir velgengni framhaldsmyndarinnar Wall Street: Money Never Sleeps. Leikarinn Will Arnett hvetur aðdáendur sína til að taka þátt í undirskriftasöfnun til bjargar nýjasta sjónvarpsþætti sínum. Þátturinn, Running Wilde, fór í loftið í síðasta mánuði en hlaut fremur dræmt áhorf. Arnett leikur sjálf- umglaðan milljónamæring sem reynir að heilla gamla kærustu úr menntaskóla að nýju. Fox-sjónvarpsstöðin pantaði þrettán þætti af Running Wilde en Arnett telur ólíklegt að fleiri verði gerðir ef áhorfið eykst ekki. Aðdáendur hafa tekið vel í bón Arnetts enda er hann í guðatölu hjá mörgum, sér í lagi gömlum aðdáendum Arrested Development. Ósáttur Arnett ÓSÁTTUR Will Arnett reynir að bjarga nýjasta grínþætti sínum. GLÆPAFARALDUR Í EYMUNDSSON Síðustu dagar glæpafaraldurs. Spennubækur á kr. 1.990,- Hafðu það notalegt um helgina! Meðgöngujóga Meðgöngujóga námskeið að hefjast hjá Jóga stúdíó. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum klukkan 20:00-21:00. Hefst mánudaginn 18. október. Seljavegur 2 - 101 Reykjavík www.jogastudio.is - jogastudio@hotmail.com Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum klukkan 18:30 – 19:30 í fjórar vikur í senn. Þátttekendur geta mætt í alla opna tíma á meðan á námskeiðinu stendur. Eftir námskeiðið fá þátttakendur eina fría viku auk 15% afslátt af kortum. Upplýsingar og skráning í síma 695-8464 Drífa og 772-1025 Ágústa. Eða á jogastudio.is 1. mánuður 10.000 kr 2. mánuðir 18.000 kr 3. mánuðir 22.000 kr Skráning hafin á jogastudio.is eða í síma 772-1025 Ágústa og 695-8464 Drífa jogastudio@hotmail.com Au gl ýs in ga sím i

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.