Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Page 29

Morgunn - 01.12.1942, Page 29
MO RG UNN 155 stundum örveikt hljóð. Þetta fyrirbrigði gerist vitanlega með sama dularfulla hættinum og það, þegar miðillinn var fluttur úr stólnum og hann fór í gegn um böndin heil, eða böndin í gegn um hann. Fyrir kom það, að beir, sem sátu til beggja hliða miðl- inum og héldu í hendur hans, urðu þess varir, að hann sleppti höndum þeirra og reis á fætur bundinn í stóln- um. Það var ekki unnt að gera sér grein fyrir þessu á annan hátt en svo, að miðillinn færi bókstaflega í gegn um böndin. Enn kom það stundum fyrir, að miðillinn var hrifinn ósýnilegu afli í transinum, var hafinn í loft upp úr bönd- unum Og stólnum Og settur niður á gólfið fyrir utan fundarmenn, sem sitja í lokuðum hring og halda hönd- um saman. Til þess að framkvæma þetta, hefir því a. m. k. orðið að lyfta miðlinum svo hátt, að hann hafi svifið yfir höfðum fundarmanna, til þess að komast út fyrir hringinn, án þess þeir yrðu þess varir fyrr en eftir á. Stundum var miðillinn í loftinu í nokkrar mínútur í einu og þá hvíldu fætur hans mjúklega á öxlum ein- hvers fundarmanna, sem fékk þá frá stjórnandanum fyrirskipun um, að þreifa á fótum miðilsins og upp eftir leggjum hans. En á meðan þetta var að gerast, barði miðillinn stundum þung högg með höndum eða höfði, eða hvorum tveggja, upp í loftið í herberginu. Þetta fyrirbrigði gerðist venjulega í fundarlokin og þá vakn- aði miðillinn standandi fyrir utan hringinn. í þessu sam- bandi er ákaflega merkilegt, að þótt miðillinn standi þannig báðum fótum á öxlum einhvers fundarmanns, finnst enginn þungi af líkama hans á meðan. Líkams- þunginn er blátt áfram upphafinn af einhverju al- gerlega óþekktu lögmáli. Þetta er ein af þeim f jölmörgu furðulegu staðreyndum, sem sálarrannsóknirnar hafa leitt í ljós og staðfest með mörgum skýlausum dæmum, þótt vér vitum ekki enn með hverju móti þær gerast. Margoft hafa fundarmenn reynt að komast undir

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.