Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 34
28
MORGUNN
skammstafað ESP. Ennfremur er um að ræða breytingu
sálrænnar orku í fysiska orku, t. d. þannig að ráða því
með hugsuninni einni saman, hvaða flötur kemur upp á
teningi, sem kastað er, svokallaða psycho-kinesis, skamm-
stafað PK. Sumir menn hafa sýnt sig að hafa sérstaka
hæfileika í þessa átt, eru sensitiv eða sálnæmir, og er
næmleikinn mjög mismunandi, fellur t .d. niður við þreytu,
og ennfremur þarf maðurinn að hafa áhuga á verkefn-
inu, svo að það takist. Á statistiskan hátt er reiknað út,
hvað miklir möguleikar séu fyrir því, að um tilviljun
eina sé að ræða, og hafa þeir, þegar bezt lætur, verið
einn á móti mörgum milljónum. Þetta er sama aðferð og
beitt er, þegar reiknaðar eru líkur fyrir því, að allir fái
hreinan lit á hendi í bridge.
Ég skal geta hér til skýringa tveggja dæma um sál-
næmi og sálorku. Prófessor Gardner Murphy, amerísk-
ur sálfræðingur, var að gera hóptilraunir á stúdentum
með hugsanaflutning. Notuð voru eins og vanalega svo-
kölluð Zena-spjöld, en þau eru fimm og með mismun-
andi táknum: Hring, ferhyrningi, krossi, stjörnu og
þremur bylgjulöguðum línum. Móttakandinn — percipi-
ent — er hafður sér í herbergi, en sendendurnir — agents
— í öðru langt í burtu. Einn stúdentinn, Miss Lillian
Levine, byrjaði með því að rekja spilin rétt 15 sinnum
í striklotu án nokkurrar skekkju. Þarna eru möguleik-
arnir fyrir því, að um tilviljun geti verið að ræða, um
30000 milljónir á móti einum. Þetta var svo óvenjulegur
árangur, að stúlkan var spurð, hvernig hún færi að
þessu. Hún gat enga skýringu gefið aðra en þá, að hún
hefði séð krossana, stjömurnar o. s. frv. koma fram á
miðstöðvarofninn. Hvei’nig hún komst skyndilega í svo
gott fjarhrifasamband og hvernig hún missti það aftux*,
vissi hvorki hún né neinn annar.
Hin tih'aunin var gei'ð af G. W. Fisk, einum stjórnar-
manni í Sálarrannsóknafélaginu bi’ezka, og var samtím-
is um sálnæmi og sálorku eða PK. Mr. Fisk var í Surrey