Fréttablaðið - 22.01.2011, Side 66
38 22. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Einu sinni var maður að
keyra fram hjá Tjörninni.
Allt í einu sá hann önd með
ungana sína fara yfir götuna í
rólegheitunum. Hann snögg-
hemlaði, steig út og tók alla
ungana og öndina upp í
bílinn og keyrði sem leið lá
upp á lögreglustöð. Þar sagði
hann varðstjóranum að hann
hefði næstum keyrt yfir end-
urnar en vissi ekki alveg hvað
hannn ætti að gera við þær.
- Farðu með þær í Húsdýra-
garðinn! sagði varðstjórinn.
Nokkru seinna rakst varð-
stjórinn aftur á sama mann-
inn keyra vestur Hringbraut-
ina. Hann stoppaði manninn
og spurði hvort hann hefði
ekki farið með endurnar í
Húsdýragarðinn, því endur-
nar voru enn þá í bílnum hjá
manninum.
- Ha, jú sagði hann, en nú
erum við á leiðinni í bíó!
Sendandi: Selma Kristín
Eydal 9 ára.
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.
Ertu alltaf glöð? Nei, það er ég
ekki.
Hvað gerir þig leiða ef þú verð-
ur einhvern tímann leið? Það
er margt sem gerir mig leiða.
Allt óréttlæti og þegar einhver
fer sem við viljum ekki að fari,
það gerir mig mjög leiða.
Hefurðu farið í fýlu? Nei, ég
hef aldrei farið í fýlu.
Ertu aldrei feimin? Jú, ég
er oft feimin. Það er mjög
skemmtilegt, þá er allt svo
spennandi.
Segirðu alltaf satt? Nei, það er
ekki hægt, stundum veit maður
ekki hvað er satt eða langar að
eitthvað annað sé satt en sem
er satt og þá segir maður fyrst
það sem er ósatt. En svo segi ég
stuttu seinna satt þegar ég er
búin að fatta að ég sagði ósatt.
Sérðu einhvern tíma eftir ein-
hverju sem þú segir? Já, oft. Og
þá hlæ ég yfirleitt mjög hátt
þegar ég fatta að það passaði
ekki að segja það sem ég sagði
– og reyni að laga það.
Hefurðu gert skammarstrik?
Nei, það held ég ekki. En ég
hef grínast og strítt, sem sagt
gleði-strítt en ekki reiði-strítt
eða fýlu-strítt.
Kanntu á hljóðfæri? Já. Saxó-
fón og flautur.
Áttu uppáhaldslag? Nei, mér
finnst mjög mörg lög falleg.
Hvað finnst þér best að borða?
Salat, avókadómauk og súkku-
laði.
Hver er besti vinur þinn? Hall-
dóra Geirharðsdóttir.
Er rauða nefið fast á þér? Nei,
það er laust á Halldóru, bestu
vinkonu minni.
krakkar@frettabladid.is
Ég hef grínast
og strítt, sem
sagt gleði-strítt en
ekki reiði-strítt eða
fýlu-strítt.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
HITT OG ÞETTA
HEF ALDREI FARIÐ Í FÝLU
Barbara trúður getur orðið leið en hún verður aldrei fúl. Hún segir að ekki sé
hægt að segja alltaf satt því stundum er erfitt að vita hvað er satt og hvað ósatt.
Barbara kann að spila á saxófón og besti vinur hennar heitir Halldóra Geirharðsdóttir. MYND/HEIDA.IS
LEYNILEIKHÚSIÐ hefur nýja
önn með leiklistarnámskeiðum
fyrir börn í 2.-10. bekk á höfuð-
borgarsvæðinu og skráning er
í gangi. Nánari upplýsingar á
vefnum leynileikhusid.is.
BORGAR-
BÓKASAFN-
IÐ stendur
fyrir sérstakri
dagskrá fyrir
börn alla
sunnudaga
klukkan
15. Á
morgun,
23. janúar, er
efnt til sögu-
stundar þar sem lesið
er fyrir börnin.
DRAUGATEIKNISAMKEPPNI
stendur yfir á morgun í Gerðu-
bergssafni og hefst klukkan 14.
SORPA.IS/UM-SORPU/LEIKIR/ er svæði á vef
Sorpu þar sem hægt er að spila skemmtilega leiki, finna
myndir til að lita og fræðast um endurvinnslu í leiðinni.
Þorgeir Bragi Leifsson
Nafn og aldur: Þorgeir Bragi
Leifsson, 11 ára.
Í hvaða skóla ertu? Laugar-
nesskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu?
Vog.
Áttu happatölu? Já, 6.
Helstu áhugamál: Fót-
bolti, hundar og hestar.
Besti matur: Pitsa.
Eftirlætisdrykkur:
Fanta.
Hvaða námsgrein er í
uppáhaldi? Íslenska.
Áttu gæludýr – ef svo
er, hvernig dýr og hvað
heitir það? Já, ég á tík
sem heitir Rispa.
Skemmtilegasti
dagurinn og
af hverju: Hann verður bráð-
um þegar ég vinn fótboltamót
með liðinu mínu.
Eftirlætistónlistarmaður/
hljómsveit: Kanye West
Uppáhaldslitur? Rauður.
Hvað gerðirðu í sumar?
Ferðaðist innan-
lands og
fannst falleg-
ast í Atlavík.
Skemmtileg-
asta bók sem
þú hefur lesið:
Heimsmetabókin.
Hvað ætlarðu að
verða þegar þú
ert orðinn stór? Ég
býst við að verða
lögfræðingur.