19. júní


19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 33

19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 33
TVÆR HUSFREYJUR VALBORG BENTSDÓTTIR: Aladínlampinn bíðnr eftir rafljósinu Síðasti dagur vetrar, sem oft hefur blásið biturt á norðan, er runninn upp, sólbjartur og andhlýr, með örlitla héluskán í skugga. Ég hef ákveðið að dusta af mér ryk skrifstofunnar og skreppa austur yfir heiði, ef hægt væri að viðra af sér andlega fá- tækt höfuðborgarinnar, sem eftir mánaðar verkfall og kaffileysi er grárri og gróskurýrari en nokkru sinni. Mætti þá svo fara að eitthvað það drypi úr penna mínum, senr nothæft væri til eyðufyllingar í 19. júní. Ég snreygi mér inn í strætisvagninn nreð tann- burstann í töskunni og tek mér síðan far með áætl- unarbílnunr til Selfoss. Förinni er lieitið á fund æskuvinkonu minnar, Valgerðar Daníelsdóttur, húsfreyju að Ketilsslöðum í Holtunr. Vegurinn er liolóttur og seinfarinn. Við erunr næstunr 3 tíma til Selfoss, og þá eru auðvitað þeir mjólkurbílar, sem ég gæti Iraft verulegt gagn af, farnir allar götur. Úr nrinni för rætist þó það, að eftir upphringingar og bollaleggingar er það á- kveðið, að ég geti fengið far austur á bóginn nrilli lrádegis og nóns, en Valgerður vinkona nrín telur bónda sinn muni freista þess að konra mér síðan á leiðarenda, þrátt fyrir lrálfófæra vegi. Þegar ég sé fram á það að þurfa að bíða þarna austur í Flóa, allt að því í tvo tínra, kemur í hug nrér falleg, ljóslrærð stúlka, Unnur Þorgeirsdóttir frá Hlenrnriskeiði, senr var með nrér í Kennara- skólanum fyrir um það bil 20 árum. Nú er lrún húsfreyja hér austan ár. Ég hringi til hennar og spyr, lrvort hún nruni nrig, og lrvort ég megi tefja hana með tveggja tíma hjali. Hún býður nrig vel- konrna til sín, og á hinu gestrisna heimili Irennar eru tveir tínrar fljótir að lrverfa. Enn legg ég af stað og stefni í austur, nú nreð mjólkurbíl. Hann silast hægt áfram og áir oft. Við svo til hvern einasta brúsapalj bíður Irans einhver, 19. JÚNÍ ValgerÖur Danielsdóttir ef ekki nrær, þá a. nr. k. maður nreð hest, hund eða jafnvel kálf. En heinr kemst, þó lrægt fari. Um nón- bil konrunr við að veganrótunr þeinr. senr ég á að staðnæmast við. Hér er kaupfélag, en benzíngeym- irinn er tómur og einn kaffipakki í hillu. Álrrif verkfallsins 88 km frá Reykjavík. \7eðrið er ein- nruna gott. Ég sezt á stein og les blöð dagsins. Bið- in er ekki löng. Jeppabifreið þeysir í hlaðið. Jó- lrann, bóndi á Ketilsstöðunr, er konrinn yfir allar torfærur til þess að sækja nrig. A leiðinni upp Holtin sannfærist ég unr, að ekki er ofsögunr sagt af farartálmum. Mér finnst, að holurnar í verstu köflunum séu allt að því mittisdjúpar og er það ráðgáta, hvenrig bóndinn getur fleytt okkur yfir þetta í bílnunr. A Ketilsstöðunr er snyrtilegt býli, nýreist stórt íverulrús úr steini og góð gripalrús. Hér lrittir nrað- ur öll gönrlu, góðu húsdýrin í sveitinni. Ég fer í fjósið og heilsa upp á kýrnar, þótt krakkarnir ógni mér nreð því, að fjósalyktin nruni fylgja mér alla leið til Reykjavíkur. 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.