19. júní


19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 46

19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 46
HALLDÓRA B. BJÖRNSSON: ELLEFU SKYRTUR Það getur verið s\ o hlálegt og vandræðalegt að vera stelpan í hópnum. Stundum er itún látin sitja inni í bæ heila og hálfa dagana, meðan strákarnir ærslast úti eins og bestíur. Hún verður að g'era sér það að góðu að sitja með prjóna í höndunum, sem hún kann eng- in tök á ennþá, eða stagla eitthvað í tusku, sem verður svo höfð til sýnis, þegar konurnar af hinum bæjunum koma í heimsókn með dætur sínar, fyrir- fram vissar um að fá að sjá handavinnu heimasæt- unnar og ákveðnar í að hrósa henni, hvernig sem hún verður: Ljómandi er þetta fallegur krosssaumur, þetta er vel gert af ekki eldri krakka. Sú verður einhvern tíma myndarleg til handanna, ef hún lifir. Það er að vísu mikið leggjandi á sig fyrir svona falleg orð og klappið sem þeim fylgir. Og þetta er sagt svo einlæglega að hún trúir því sjálf að þetta sé dagsatt. Og hún er næstum búin að telja sjálfri sér trú um að það sé ekki nema sjálfsagt að sætta sig við þetta, það sé eðlilegt hlutskipti hennar, af því hún sé stelpa og verði að vera myndarleg í höndunum og hún veit að hún getur ekki orðið það nema hún læri allt sem fullorðna kvenfólkið getur kennt henni. En þegar komnir eru útmánuðir, með sólbráð og auða þúfnakolla og vaknandi læki undir krím- óttu snjóþakinu, þá er sannarlega meira gaman að reka lömbin út á Stekkjarbörðin og sjá þau stymp- ast ánægjulega um gulleita vornálina, sem er að koma undan fönn, heldur en að sitja með ólukkans prjónana, og vera myndarleg í höndunum. Og það er nú meira hvað þetta getur verið sein- legt. Það munar næstum ekkert um hverja lykkj- una. Stundum verður hún líka að rekja upp það, sem búið er að basla við tímunum saman, því eitt- hvað hefur verið gert skakkt. Þegar hún sýnir mömmu sinni íleppinn og heldur að allt sé í stak- asta lagi, þá er kannski ófétis leppurinn orðinn helmingi breiðari í annan endann, eða þá að gleymzt hefur að setja eina rauðu röndina, þar sem hún átti að vera. Og þegar búið er að rekja upp, verður að prjóna aftur úr sama bandinu og þá er það allt í bugðum og krókum og hálfu verra að prjóna úr því en áður. Það er heldur ekki látið bezta bandið í hendurnar á krökkunum, sem eru að byrja að halda á prjónum, en oftast valinn tog- bandsgroddi, sem særir bæði fegurðarskyn þeirra og fingurna. Það vantar heldur ekki mikið á að hún sé búin að stinga gat á sleikipott vinstri handar. Það er hann sem mest mæðir á, því hann verður að halda 32 1 í). | l) N í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.